Morgunn - 01.12.1921, Blaðsíða 88
208
HORGUNN
ir, orðaðir svo að illa só við það unandi, og sumar grein-
irnar með öllu óboðlegar. Vér gerum ráð fyrir að það
sé að minsta kosti meðfram fyrir þá skoðun að sá guð-
fræðiprófessorinn, sem sérstaklega á að búa háskólastúd-
enta undir það að verða prestar, síra Sigurður P. Sivert-
sen, notar alls ekki neitt kver við tilsögn sína, þrátt
fyrir það að svo er litið á, sem kver sé lögskipað til
fermingarundirbúnings. Oss kemur auðvitað ekki til
hugar, að Morgunn fari að flytja neina alis-herjar gagn-
rýning á kverunum. En ekki virðist oss úr vegi að
benda á örfá dæmi. Vér tökum þau öll úr þvi kverinu,
sem oss skilst, að mest sé notað.
I kafianum »um sköpun heimsins og mannsins* er
þessi grein:
»Hin upphaflega guðsrnynd mannsins var annað og
meira en þeir yfirburðir, sem mennirnir hafa sífelt fra.n
yfir dyrin; því að hún var fólgin i háleitri þekkingu,
hreinu hugarfari og sœlurífcum sálarfriði; en samfara þessu
var þjáningarlaust líf og ódauðlegt líkamseðli«,
Auðvitað er varlega farandi í fullyrðingar um það,
hverjar hugmyndir sumir menn kunna að gera 801' UID
sköpunarverkið. En bezt gætum vér trúað því, að enginn
mentaður nútíðar maður muni ætla, að i þessari grein 8é
rétt skýrt frá vorum fyrstu foreldrum. Að minsta kosti
höfum vér aldrei heyxt getið um nokkurn slíkan mann,
er trúi á þessa miklu yfirburði Adams og Evu yfir okkur
og 8é sannfærður um, að þau ásamt öllum þeirra eftir-
komendum mundu enn lifa hér á jörðunni ef þau hefðu
ekki etið eplið fræga.
Um upprisu Jesú Krists er svo að orði kveðið:
»Dauðinn gat eigi haldið hinum heilaga guðs syni
Jesú Kristi. Hann reis því upp aftur á þriðja degi, eins
og hann hafði fyrir sagt, og hefir með þvi sýnt oss og
sannað eigi aðeins guðdóm sinn, heldur og það, að hann er
sigurvegari syndarinnar, dauðans og djöfulsins og að vér
eigum upp að rlsac.