Morgunn - 01.12.1935, Side 72
198
M 0 R G U N N
Þegar forráðamaðurinn kom í staðinn fyrir sjáarann, og
skipulagsmaðurinn var tekinn fram yfir vitranamanninn og
manninn með andlegan mátt. Svona var það, og svona
er það, og af þessu stafa öll vandræðin. Öldum saman
hafa forráðamenn vorir og skipulagsmenn vorir verið
»hyggnir og varkárir«. Og ríkið, sem opinberað er smá-
börnum, hefir farið fram hjá þeim. Ef maðurinn endurfæðist
ekki, getur hann ekki séð guðsríki, og í blindni sinni heldur
hann að smíðapallarnir séu húsið sjálft; og af því að hann
heldur að þeir séu húsið, þá fer hann að fást við að prýða
þá og vegsema. Hann beinir allri sinni athygli að kredd-
um og fyrirkomulagi, að helgisiðum og viðhöfn, og gerir
sér ekki grein fyrir því, að þetta er alls ekki húsið, heldur
smíðapallarnir. Hann heldur að líkaminn sé sálin, að skelin
sé perlan.
Jafnskjótt sem Jesús hafði rifið niður pallana og gefið
mannkyninu dýrlegt hús, tóku mennirnir aftur að reisa
palla kringum það, þangað til húsið sást ekki lengur. Nú
í dag eru mennirnir að uppgötva hina huldu fegurð bak við
smíðapallana, sem eru utan um trúarbrögð veraldarinnar,
og þeir snúa sér til kristninnar og vona að sjá dýrlegt
hús með mjög litlu af smíðapöllum, en í staðinn fyrir það
sjá þeir dýrlega smíðapalla og mjög lítið af húsinu.
Forráðamennirnir og skipulagsmennirnir hafa ekki tal-
ið neitt gagn að sjáurum og spámönnum. Og af því að
þeir hafa lítið vitað um sálrænu hliðina, hafa þeir misskil-
ið og þýtt ranglega og skýrt rangt hverja greinina eftir
aðra í þessu bókasafni, biblíunni. Sumir eigna sálræna efnið
í henni austurlenzku líkindatali, ýkjum og táknatali og
óvísindalegum tíma.
Oss er boðið að elska drottinn vorn guð með hugum
vorum eins og með hjörtum vorum. Nú spyr einlægur
hugur alvarlegra spurninga. Hann vill fá að vita sannleik-
ann, veruleikann. Þegar hann heyrir prest segja i kirkjunni:
»Guð talaði þessi orð og sagði«, og les því næst boðorð-
in, þá kemur hugurinn með aðrar eins spurningar og þessar: