Búfræðingurinn - 01.01.1948, Qupperneq 103
BÚFRÆBINGURINN
101
Þvinga, scm heldur mjólkurbrúsanum niðri í vatninu, enda þótt hann
sé ekki íullur af mjólk.
fyrir mjaltaföturnar. Séu vélar notaðar þarf einnig að vera
veggpláss fyrir dauðhreinsarann, eins og tekið er fram hér að
framan.
6. Gólf og veggir.
ímiðju gólfi, bæði í þvottaklefa og kæliklefa, þarf að vera
svelgur. Á svelgnum verður að vera góður vatnslás, svo að ólykt
geti ekki komizt upp. Gólfið verður að vera úr sterkri stein-
steypu og húðunin sterk og slétt. Bezt er að leggja gólfið sér-
stökurn gólfflísum, eða nota til þess hið svokallaða ,,terrasso“.
Sá galli er þó á hinu síðarnefnda, að það vill endast illa, þar sem
mjólk nær að súrna á því, nema því aðeins að notað sé sérstakt
steypuefni, sem mjólkursýran vinnur ekki á. Þá væri æskilegt,
bæði vegna hreinlætis og einkum vegna útlits, að flísleggja
veggi mjólkurhússins, í allt að 150 cm. hæð frá gólfi. Fyrir ofan
flísarnar og eins loftið, verður að kalka að öðrurn kosti. Veggir,
loft og gólf og allir hlutir, sem koma nærri mjólkinni, eiga að
vera hreinir og snyrtilegir.
7. / vélarklefanum
skal komið fyrir aflvél þeirri, sem drífur mjaltavélarnar. Þar
má á veggi hengja ýms verkfæri, sem oft þarf að grípa til við
lagfæringar, svo sem hamar, naglbít, skrúflykla o. fl. Einnig
má hafa þar lítinn skáp, með klórum í og öðrum smááhöldum,
sem oft eru notuð við fjósverkin. Vélarhúsið verður að vera
þannig sett, að unnt sé að koma útblástursröri út um vegginn
eða upp um þakið. Sé olíumótor notaður til þess að knýja