Búfræðingurinn - 01.01.1948, Blaðsíða 130
128
BÚFRÆÐINGTJRINN
eldra fólksins ráða alltaf mestu um stefnu æskunnar. Gildir
þetta engu síður um skólagöngur en annað. Uppeidisfræði og
öll saga sannar þetta í megindráttum, svo ekki verður á móti
mælt.
Rétt er að geta þess, að margir löggjafar hafa á ýmsum tím-
um greitt fyrir búnaðarskólunum og reynt að sjá svo um, að
þeir hefðu líka aðstöðu og aðrar menntastofnanir, til þess að
gegna hlutverki sínu, enda er rækun á skólasetrum orðin mikil,
vélakostur í góðu lagi og bústofninn ágætur. Byggingar eru
miklar, og margar góðar, þó við þær þurfi að auka. Sá, sem
þetta ritar, er raunar ekki kunnugur á Hvanneyri, en fyllyrða
má, að það, sem hér er sagt, er ekki ofmælt gagnvart Hólum.
Skólahúsið þar er án efa meðal beztu skólahúsa landsins. Hitt
er sjálfsagður hlutur, að jafnan Jrarf að verja nokkru fé til
viðhalds og umbóta á skólunum, til þess að Jieir geti svarað
kröfum tímans og nemendur hafi fyllstu not af dvöl sinni þar.
En nokkuð virðist hafa skort umhyggju fyrir þessu á Jreim ár-
um, er þjóðin hafði mest fjárráð.
Alþingi afgreiddi nú fyrir skömmu hina miklu menntamála-
löggjöf sína. Naumast mun hægt að finna eitt einasta orð í lög-
gjöf þessari um það, að henni sé ætlað að bæta úr framtíðarþörf
búnaðarskólanna á nokkurn hátt. Ekki livetur hún unga menn
til þess að sækja búnaðarnám. Líka aðstöðu virðist þessi löggjöf
hafa gagnvart öðrum skólum, sem eiga að búa fólk undir það að
taka þátt í öðrum framleiðslustörfinn. Skannnt er síðan að reist-
ar voru tvær síldarverksmiðjur fyrir um 40 milljónir kr., svo
sem frægt er orðið. Raunar er önnur þeirra ónotuð enn, og fer
það eftir duttlungum síldarinnar, hvort það verður gert nokk-
urn tíma. En það hefur tekið mörg ár að leggja þriggja km. veg
neðan Hjaltadal „heim að Hólum“, og er Jró vegarstæðið gott.
Það var ekki mikil hrifning á „veltiárunum" fyrir elzta og
frægasta skólasetri landsins, sem auk þess er mjög sótt af ferða-
mönnum, sökum fegurðar sinnar og fornra minninga. Vonir
munu nú standa til, að bráðlega rætist úr um vegamál þessi,
enda er þess ærin þörf. Þá Jiarf og að reisa kennarabústaði, verk-
stæði, verkfærageymslu og endurreisa fjós á Hólum sem fvrst.
Til Jiess verður að ætlast, að áhrifamenn og leiðtogar okkar