Saga - 1960, Page 9
Þorkell Jóhannesson prófessor
1895 -1960
í MINNING HANS
I.
Rektor Háskóla íslands, Þorkell Jóhannesson frá Fjalli,
lézt varla hálfsjötugur og var í starfsgleði og haustönn-
um vegna stofnunar sinnar, 31. 10. 1960. Hann var í hópi
þeirra þegna landsins, sem sjónarsviptir er að, þegar
hverfa. Tímaritið Andvari heldur jafnan til haga ævi-
atriðum og tilraunum samtíðar til að eignast heildar-
mynd af persónuleik manna, slíkra sem dr. Þorkell Jó-
hannesson var. Saga neitar sér því um það nema um
smádrög að sumum æviþáttum hans og samhengi þeirra
við menningarumskipti 20. aldar. Þorkell var forseti
Sögufélagsins.
Fyrsta sinn sem ég sá og frétti tilveru þeirra lang-
feðga, hreppstjóra- og oddvitakyns á Fjalli í Aðaldal,
var haustkvöld 1909 í fjárhúsum Syðra-Fjalls, og ég
var snáði á 5. vetur, gestkominn með öðrum við fjár-
rekstur. Þorkell eldri bar týru um kró við að telja fé
og leit hýrt á skepnur; það átti þátt í búsæld hans.
Upp við hraunúfinn króarvegg fortíðar á Fjalli studd-
ist hann lotinn og smár með Ijósið, en svipurinn meitl-
aður óbifandi festu og skarpskyggni. Ekki hafði ég
ímyndað mér sveitarhöfðingja þannig, en skynjaði óút-
máanlega, að enginn gat verið í nánara samræmi við
virðulegt hlutverk sitt en Þorkell gamli Guðmundsson
né fullkomnað það meir en hann, er hann hafði nú lagt
sveitarvöld og bú í hönd börnum sínum og mundi brátt
í hendur nafna og sonarsyni, Þorkatli Jóhannessyni, ef
engin ósköp né byltingar öftruðu því.