Saga - 1960, Qupperneq 48
40
BROT ÚR HEIMSMYND ÍSLENDINGA
væri það sokkið hvern dag, en á nóttum uppi (Guta saga).
En hafi þess kyns þjóðsögur borizt ásatrúarmönnum
víkingaaldar, var aðeins um lyfting eða hvarf einhvers
tanga eða eyjar að ræða, og engin merki eru um, að
norræn heimsmynd hafi mótazt neitt af því. Álíka lang-
sótt Völuspárskýring væri það að vitna til indverskra
fomspekinga, sem vissu um einhverja lyfting stranda og
gerðu sér mikinn heilaspuna úr.
Það eru íslendingar, Gotlendingar og Jótar, sem haft
hafa þá trú á síðmiðöldum einir norrænna manna, að
lönd sín kynnu að sökkva (og löngu fyrr Irar).
En þá var þetta orðin uppvesluð hjátrú, án heimsmynd-
ar. Völuspá ásamt skáldum, sem virðast sæta áhrifum
frá henni, er ekki aðeins eina evrópska heimildin um, að
jörðin sé öll særisin, enda muni oftar rísa úr sæ, heldur
einnig um væntanlegt hvarf hennar allrar niður í sæ.1’
Hefur því sá þáttur Ragnaraka aldrei tilheyrt raunveru-
legri ásatrú, eins og t. d. Arnór skáld mun hafa vitað.
Samanburður á náttúruskoðun Grikkja og Völuspár
virðist ekki þýðingarlaus, í báðum stöðum fengust svip-
aðar ályktanir af sömu náttúruauðkennum og jarðbylt-
ingaröflum, en raunsæi og trúkredduandóf Völuspár um
1000 var nógu eðlisskylt grískum anda til að þora að
trúa uppgötvun sinni. Hitt þýðir ekki að fást um, að í
hvorugum stað urðu menn alveg sannfróðir um þessi
jarðsögulegu efni, og skorti miklu mest til þess, að íslend-
ingar yrðu það. Þegar hinn lærði könnuður, Snorri
Sturluson, tók að vinna fyrnda heimsmynd úr efni Völu-
spár, þorði hann ekki að taka neitt mark á því, að jörð
sé særisin. Með tilstyrk Nóaflóðshugmyndar skrökvaði
1) Axel Olrlk: Om Ragnarok, Aarböger 1902, 175-89. — Olrik segir m.a.: ,,Det er
klart at jordens synken 1 hav st&r mœrkelig ene. Den optræder i vore kilder som et
rent og skært naturfænomen, som fysik. Intet mytisk væsen fremkalder eller hindrer
den, mindst af alt noget til havet knyttet væsen, f. eks. Midg&rdsormen .... Völuspá ....
lader Jorden uden nogens indgriben synke i hav og lader den atter af indre llvskraft
hæve sig over vandene til et nyt verdensliv.**