Ársrit Nemendasambands Laugaskóla - 01.01.1928, Blaðsíða 18
16
hushállsskola), sem er í sömu bygðinni eigi alllangt frá
gistihúsinu. Kom eg daglega í skólann og hafði þar nokkra
dvöl. Svo stóð á, að forstöðukonan var ekki heima, meðan
eg dvaldi þar, en ungfrú Eurenius, sem veitti skólanum
forstöðu fyrir hennar hönd, lét mér fúslega í té allar upp-
lýsingar um stofnun skólans og rekstur, auk þess sem
Halldóra sagði mér frá sinni kynningu af skólanum þann
tíma, sem hún var búin að dvelja þar, og kann eg þeim
báðum þakkir fyrir.
II.
Hússtjórnarskólinn í Helsingjagarði var stofnaður fyrir
tíu árum af ungfrú Agnes Sundberg. Skólinn var hennar
eign, og rekinn á hennar ábyrgð en með sýslu- og ríkis-
styrk. í Svíþjóð eru 40—50 samskonar skólar, en flestir
eru þeir í sambandi við alþýðuskólana og reknir af sýslu-
félögunum, en stjórnað af sérstökum skólanefndum, sem
héraðsstjórnirnar kjósa. Eru forstöðukonunum mjög
bundnar hendur um fyrirkomulag alt, og það samræmt
alþýðuskólakerfinu öilu. Þessi skóli hefir því nokkra sér-
stöðu, þótt eftirlitsmenn séu honum settir. Á stjórnandi
skólans léttara með að samræma hann sínu eigin eðli og
hugsjónum, og gefa honum þann svip, er hann helst kýs,
og ber skólinn þess mjög merki.
Nemendur voru síðastliðið sumar 30, og svo mun jafn-
an vera, en aðrir slíkir skólar mega ekki hafa fleiri nem-
endur en 24. Vegna þessara 6 nemenda, sem við var bætt,
var skólanum skylt, að bæta við einni kenslukonu, svo
þær eru 6 alis. Sýnir það, að allháar kröfur eru gerðar til
kenslukrafta, enda er kenslan fjölþætt og henni þannig
hagað, að hún krefst náins sambands milli kennaranna og
hvers einstaks nemanda.
Tvö námskeið eru haldin árlega og stendur hvort 5J/2
mánuð. Einstakir nemendur taka tvö námskeið, hvort eftir