Ársrit Nemendasambands Laugaskóla - 01.01.1928, Blaðsíða 66
64
Þó að skólahúsið væri nú upp komið, þótti stjórn S. Þ.
U. enn margt ógjört, til að koma skólamálinu vel í höfn.'
Hafði hún fund með sér dagana 19. og 20. janúar 1925,
til þess að bera ráð sín saman um, hvernig skyldi halda
áfram sókninni. Var ráðið að gefa út handritað blaö
(»Þingeying«) með ritgerðum og skýrslum um skólamál-
ið og senda til ungmennafélaganna í Sambandinu. Einnig
réðu þeir ferð sína til Reykjavíkur Arnór og Þórólfur, og
hugðu þeir að leita til alþingis um aukinn byggingarstvrk
handa skólanum og tryggja honum nægilegan styrk af
opinberu fé til reksturs eftirleiðis. Einnig réð stjórnin þaö
á þessum fundi fyrir sitt leyti, að S. Þ. U. stæði fyrir hér-
aðshátíð á næsta vori (1925), mintist þar 10 ára afmælis
síns og afhenti héraðinu skólann.
Ketill sá um útgáfu Þingeyings að mestu leyti. Ritaði
hann aðalritgerðina í blaðið, yfirlitsgrein um skólamáliö.
Einnig var í blaðinu greinargerð frá Arnóri um bygging-
arkostnaðinn, hvernig skólamálinu væri komið, og hvað
einkum þyrfti næst að gera. Þórólfur ritaði um héraðshá-
tíð n. k. vor. Og að lokum var í blaðinu ritgerð um bygg-
ingu yfirbygðrar sundlaugar við skólann.
i ferð þeirra Arnórs og Þórólfs til Reykjavíkur geröist
þetta merkast:
1. Þeir fengu fullnaðarloforð fyrir 25 þús. króna af-
borgunarláni handa skólanum í Söfnunarsjóði íslands, ef
Suöur-Þingeyjarsýsla vildi taka lánið eða ábyrgjast það.
Var mikils virði fyrir skólann að geta fengið það lán, því
að vextir og annar kostnaður af skuldum hans var 8]/2%
en vextir í Söfnunarsjóði eigi nema 6%. Þetta mál kom
svo fyrir sýsulnefnd S.-Þingeyjarsýslu síðast í mars 1925,
og kom þá Arnór norður, til að mæta þar fyrir skólans
hönd ásamt Katli. Samþykti sýslunefndin með 10 atkv.
gegn 2, að ábyrgjast lán þetta fyrir skólann með þeim
skilyrðum, aö annaðhvort sýslan eða Söfnunarsjóðurinn