Ársrit Nemendasambands Laugaskóla - 01.01.1928, Blaðsíða 56
54
varð mjög lftið vart, að menn væru að leita að tyllisökum,
til að komast undan þeim Ioforðum. Um eitt af þessum
loforðum, sem að vísu var yngra en hin flest, stóð sér-
staklega á. Sveitarfélagið í Aðaldal hafði lofað 2 þús.
krónum »til alþýðuskólabyggingar á Grenjaðarstöðum«.
En er breytt var uin skótastað, takii það sér ekki skylt að
víkjast undir nokkur framlög til skólans. Beittist prestur-
inn á Grenjaðarstöðum, sem einn átti sök á staðarbreyt-
ingunni, fyrir því, ásamt fylgifiskum sínum, að slík yrðu
málalok. En á sveitarfundi þeim, er leiddi það niál til
lykta, dró presturinn 100 króna seðil upp úr vasa sínum,
og sagðist mundu gefa skólanum, ef aðrar 400 krónur
væru komnar í peningum eða loforðum að klukkustund
liðinni. Ekki var því sint, enda var það ekki skoðað svo,
að það væri í vinarhug gert til skólamálsins. Að nokkurri
stund liðinni tók prestur seðilinn aftur og stakk í pyngju
sína, og taldi hann sig hafa gert betur en hann hefði lof-
að, því að liðin væri klukkustund og átta mínútur, síðan
hann lagði féð á borðið, enda tók hann vitni að. En þó
þessi yrðu niálalok á fundinum, ináttu þó forgöngumenn
skólamálsins una nokkurnveginn vel við sinn hlut. Þeir
höfðu meiri hluta unga fólksins sín megin og þá flesta af
eldri mönnunum, sem voru því vaxnir, að veita góðu máli
fylgi í raun. Reyndist ungmennafélagið og einstakir menn
skólamálinu svo vel, að telja má drjúga uppreisn fyrir
sveitina.
------Stjórn S. Þ. U. fann það vel, er framkvæmdir í
skólamálinu tóku að nálgast, að hún átti þar mestan styrk
að baki heima fyrir, er unginennafélögin voru. Því var
það sjálfsagt mál, að fara svo nærri vilja félaganna um
allar framkvæmdir, sem unt var. En til að kynnast vilja
félganna og ná fullri samvinnu við þau, voru tveir full-
trúafundir haldnir í Sambandinu á öndverðu ári 1924.
4
Fyrri fundurinn var aukafundur, og var hann haldinn