Ársrit Nemendasambands Laugaskóla - 01.01.1928, Blaðsíða 137
Laugamanna annáll.
Þegar stofnaö var til útgáfu Ársritsins í upphafi, var
því ineöal annars ætlað aö flytja meðlimum Nemenda-
sambandsins fréttir af sínum gömlu félögum, og á þann
hátt halda kynningunni við, líka meö þeim, sem ekki hafa
bréfaskifti sín á milli. Til þess að fullnægja þessu, var i
síöasta hefti birtur »Laugamanna annálk, þar sem getiö
var þess, er helst þótti í frásögur færandi um fyrverandi
nemendur skólans, eftir því sem kunnleiki ritstjórans
leyföi. En það er vitanlegt mál, aö slíkur annáll verður
altaf hraflkendur, nema því aöeins, að brottfarnir nemend-
ur láti öðruhvoru skólanum í té nokkrar upplýsingar, því
öröugt verður, þegar hópurinn stækkar, fyrir þá, sem um
Ársritið sjá að vita deili á því, hvað hver einstakur hefur
með höndum sem aðal starf, eða hverju hann kemur í
framkvæmd. Má því búast við, að jafnan sakni einhverjir
upplýsinga, sem þeir hefðu kosið að fá, og margt frásagn-
arvert falli niður.
í eftirfarandi línum vil eg nú reyna að bæta við annál
síðasta árs því, sem mér er kunnugt um, að merkast hafi
gerst síðan á því sviði, sem honum er ætlað að ná yfir, og
tel eg þar undir það, sem gert er að framkvæindum hér
heima í skólanum, og ekki heyrir undir hið eiginlega star.f
skólans, sem skólaskýrslan nær til.
Eins og skýrt er frá í síðasta annál, fór Ása jóhannes-
dóttir til útlanda veturinn 1927, til þess að kynna sér sér-