Ársrit Nemendasambands Laugaskóla - 01.01.1928, Blaðsíða 77
Úr bréfi
frá Sigurgeiri Friðrikssyni frá Skógarseli.
Sigurgeir Friðriksson hefur nú í þrjú ár dvalið vestur í
Ameríku, lengst í Kaliforníu, til að kynna sér bókasöfn og bóka-
vörslu. Þessir bréfkaflar, sem hér fara á eftir, sýna það vel,
bvernig forgöngumenn »skólamálsins« hafa hjálpast að þvi að
liugsa fyrir skólanum og um hann, auk þess sem af -þeim má
sjá, að þeir hafa ekki slept af skólanum hendi, þó að hann sé
kominn upp, né heldur slitið samvinnu sín á milli. Úr bréfinu er
feldur langur kafli um ferðir Sigurgeirs vestra og um bókasöfn
þar, og svo leiðbeiningar handa mér, ef eg færi vestur. Bréfið
er skrifað í gletni og alvöru jöfnum höndum, en við sem Sigur-
geir þekkjum, skiljum vel, hvað honum er alvara, og hvað er til
að krydda matinn. Bréfið er hér birt í leyfisleysi. En þó að
Sigurgeir reiðist mér fyrir það, þá höfum við haft svo mikið
saman að sælda, að eg treysti því, að við getum jafnað það
með okkur.
A. S.
San Francisco G. maí 1927.
Kæri vinur. Eg geri víst ekki annað þarfara með af-
mælisdaginn minn en að skrifa þér. Hefi eg altaf liaft það
i liuga, en vildi helst geta sagt eitthvað, sem komið gæti
að notum, en það vill ekki verða. Eg veit þig langar, til
að skreppa vestur yfir hafið, þyrftir að fá tækifæri til
þess, en hefur ekki efni á því. Við þurfum utan fimta
hvert ár, til að halda okkur ungum, eins og Jónas segir,
og ef við ætlum að kynnast veröldinni, er ekki rétt að
sneiða hjá Ameríku.-----------------------------------------