Ársrit Nemendasambands Laugaskóla - 01.01.1928, Blaðsíða 60
58
»komist upp við alþýðuskólann, svo fljótt sem þess er
»kostur. Skal stjórn S. Þ. U. leita samvinnu við kvenfé-
»lögin í Þingeyjarsýslu um undirbúning þess máls«.
Tillagan samþykt með öllum atkvæðum.
»d. Fundurinn skorar á stjórn Sambandsins, að sníða
»stærð skólahússins eftir fjárráðunum, svo og að tak-
»marka sem unt er allan kostnað við bygginguna.
Tillagan samþykt með 9 gegn 3 atkv.
»e. Fundurinn felur stjórn Sambandsins að taka fulln-
»aðarákvörðun um skólastaðinn«.
Samþ. með 10 gegn 1 atkv.
Tillögurnar voru lagðar fram af stjórn Sambandsins,
nema tillaga d. En stjórnin greiddi ekki atkvæði um neina
þeirra.
Á þessuin fundi varð lítilsháttar breyting á stjórn Sam-
bandsins. Varð Arnór formaður stjórnarinnar, en það
hafði Þórólfur verið áður frá því Sambandið var stofnað.
Þórólfur var þó í stjórninni áfram og sömuleiðis Ketill,
sem kosinn hafði verið í stjórnina 1922. Þessir menn sáu
um framkvæmd skólabyggingarinnar ásamt Birni á Brún,
er sýslunefnd kvaddi til að hafa þar ráð fyrir sína hönd.
Aldrei var fimti maðurinn í nefndina kosinn eða kvaddur
til. Formaður nefndarinnar var heldur aldrei kosinn form-
lega, en þrír nefndarménnirnir gerðu þá yfirlýsingu, ein-
hvern tíma nálægt miðjum starfstíma hennar, að þeir
teldu Arjiór sjálfkjörinn til að vera það, enda hafði liann
að flestu leyti besta aðstöðu, til að hafa eftirlit með bygg-
ingunni.
Fyrstu verk framkvæmdarnefndarinnar voru þau, að
semja um kaup á efni til skólans, ráða yfirsmið og ráða
til hlítar um skólastaðinn. Kaupfélag Þingeyinga sá um
útvegun á efni að mestu leyti, og hafði það raunar verið
ráðið fyr en hér var komið sögunni. Yfirsmiður var ráðinn
Einar Jóhannsson byggingarmaður á Akureyri. Og ráðið