Hugur - 01.06.2008, Side 140
i38
Jóhann Björnsson
felst í því að vera manneskja sem er sífellt að gera eitthvað úr sjálfri sér og lífi
sínu. Þetta þýðir að kennarinn leitast við að fá nemendur til að gera sér grein fyrir
því að:
1. Stöðugt val á sér stað í lífinu. Telji nemendur sig ekki velja neitt þá er það
engu að síður ákveðið val. Þannig gengur hver dagur út á það að valið er
um ýmsar leiðir og lífskosti. Val getur snúist um stóra sem smáa hluti,
hvort það eigi að skrópa í kennslustund, læra heima eða stela geisladiski af
náunganum, svo dæmi séu nefnd.
2. Það er á ábyrgð sérhvers einstaklings hvernig hann velur og hvernig hann
áformar h'f sitt. Sérhver einstaklingur er frjáls hvort sem honum líkar það
betur eða verr og enginn kemst undan því að velja og gera eitthvað úr lífi
sínu.Tilvist einstakJinganna er án afsakana og sérhver einstaklingur er það
sem hann gerir úr sér.
3. Með frelsinu eru menn dæmdir til ábyrgðar og með breytninni er maður
öðrum fyrirmynd. Það ber merki um óheilindi að ætla sér að gera undan-
þágur fyrir sjálfan sig og breyta á þann hátt sem maður vill ekki að aðrir
taki sér til fyrirmyndar. Sartre komst þannig að orði: „Og hverjum manni
ber að spyrja sjálfan sig: er ég áreiðanlega þess umkominn að haga mér á
þann veg að mannkynið taki sér athafnir mínar til fyrirmyndar?"'6
Ef það tækist að koma nemendum og reyndar öllum öðrum sem að skólastarfi
koma í skilning um mikilvægi þessara grunnþátta tilvistarspekinnar er enginn
vafi í mínum huga að það yrði skólastarfi til framdráttar. Abyrgðarleysi og afsak-
anir, skeytingarleysi um mannleg verðmæti og tilhneigingar nemenda til þess að
gera undanþágur fyrir sjálfa sig í siðferðilegum efnum er á meðal þess sem kenn-
arar þurfa að takast á við í sínum daglegu störfum.
Tilvistarspekileg viðfangsefni, tilvistarvandinn, frelsið og ábyrgðin mæta okkur
hvarvetna. Skólastarf stefnir meðal annars að því að þroska manneskjur og bæta
samfélög og í því verkefni hefur tilvistarstefnan margt að bjóða.
Hamingjan er mér einnig mjög hugleikin í skólastarfi. Þar hef ég sótt mikið
til Epíkúrosar auk þess sem skólastefna A.S. Neill hefur að undanförnu styrkt
sjónarmið mín mikið. A.S. Neill lagði mikla áherslu á mikilvægi þess að börn
væru hamingjusöm. Undir það tck ég heilshugar en um uppeldisstefnu A.S. Neill
segir Erich Fromm m.a.: „Markmið uppeldis, meira að segja markmið lífsins, er
að vinna af gleði og að geta orðið hamingjusamur. Að áliti Neills táknar það að
vera hamingjusamur hið sama og „að hafa áhuga á lífinu.““17
Ég sagði eitt sinn á foreldrafundi þegar talið barst að agamálum og námsmati
að sjálfur kysi ég frekar að kenna „óþekkum" nemanda en hamingjusömum held-
ur en „stilltum" en óhamingjusömum.
16 Jcan-Paul Sartre, Tilvistarstefiian er mannhyggja, s. 58.
17 Erich Fromm, „Formáli" að A.S. Neill, Summerhill-skdlinn, s. 12.