Hugur - 01.06.2008, Qupperneq 121

Hugur - 01.06.2008, Qupperneq 121
Formáli að Fyrirbærafræði skynjunarinnar 119 skynsemi og hins náttúrulega viðhorfs - þvert á móti eru þau einmitt hið eilífa viðfangsefni heimspekinnar - heldur er um það að ræða að vegna þess að gengið er út frá þessum sannindum sem forsendum allrar hugsunar „segja þau sig sjálf' og til þess að vekja þau upp og leiða þau í ljós verðum við að losna úr viðjum þeirra stundarkorn. Eugen Rnk, aðstoðarmaður Husserls, hefur án efa komist manna best að orði um afturfærsluna er hann talaði um „undrunina" andspænis heim- inum.6 Yfirvegunin felst ekki í því að draga sig út úr heiminum og inn í einingu vitundarinnar sem þá er skilin sem grundvöllur heimsins, heldur í því að stíga til baka í því skyni að sjá afbrigði hins forskilvitlega blossa upp. Yfirvegunin slakar á þráðum ætlandinnar sem tengja okkur við heiminn í þeim tilgangi að leiða þá í ljós. Yfirvegunin ein er vitund um heiminn af því að hún afhjúpar hann sem framandi og mótsagnakenndan. Hið forskilvidega hjá Husserl er ekki það sama og hjá Kant, og Husserl sakar kantíska heimspeki um að vera „veraldleg" heim- speki af því að hún notfærir sér samband okkar við heiminn, sem er hreyfiaflið í hinni forskilvitlegu afleiðslu, og kemur heiminum fyrir innan sjálfsverunnar, í stað þess að undrast andspænis sambandi okkar við heiminn og líta þannig á sjálfsveruna að hún beinist út fyrir sjálfa sig á vit heimsins. Allur sá misskilningur sem átti sér stað í viðskiptum Husserls við túlkendur sína, við „andófsmenn“ úr röðum tilvistarsinna og að lokum við sjálfan sig sprettur af því að til þess að sjá heiminn og ná tökum á honum sem þverstæðu verðum við að láta af því að vera heimavön í honum, og að af þessu uppátæki getum við ekkert lært annað en það að heimurinn sprettur fram að ástæðulausu. Helsti lærdómurinn sem draga má af afturfærslunni er sá að fullkomin afturfærsla er ómöguleg. Þar er komin ástæða þess að Husserl tekst sífellt að nýju á við spurninguna um það hvort afturfærslan sé möguleg. Værum við hinn algjöri andi væri afturfærslan engum vandkvæðum bundin. En úr því að við erum þvert á móti í heiminum, og úr því að meira að segja yfirveganir okkar eiga sér stað í flæði tímans sem þær reyna að ná tökum á (af því að þær sicb einströmen, smeygja sér inn í strauminn, eins og Husserl segir), fyrirfinnst engin hugsun sem spannar afla okkar hugsun. Heimspekingurinn er eilífur byrjandi, segir einnig í hinum óútgefnu ritum Husserls. Þetta merkir að hann gengur ekki að neinu því vísu sem mennirnir eða vísindin telja sig vita. Þetta merkir einnig að heimspekin getur heldur ekki gengið að sjálfri sér vísri í þeim sannindum sem henni hefur tekist að halda fram, að hún verður ætíð endurnýjuð atrenna að þessari byrjun, að hún er í heild sinni lýsing á þessari byrjun og að lokum að róttæk yfirvegun er vitund um að vera háður óyfirveguðu lífi sem er upprunaleg, varanleg og endanleg staðsetning hennar. Þess vegna skjátlast þeim hrapallega sem hafa fltið svo á að fyrirbærafræðileg afturfærsla sé ávísun á hug- hyggjuheimspeki - öllu heldur vísar hún á tilvistarheimspekina: „In-der- Welt- Sein“ (,,vera-í-heiminum“) hjá Heidegger birtist einvörðungu á grunni hinnar fyrirbærafræðilegu afturfærslu. * 6 Eugen Fink, Diephánomenologische Philosophie EdmundHusserls in dergegenwáríigen Kritik, s. 331 o.áfr.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140
Qupperneq 141
Qupperneq 142
Qupperneq 143
Qupperneq 144
Qupperneq 145
Qupperneq 146
Qupperneq 147
Qupperneq 148
Qupperneq 149
Qupperneq 150
Qupperneq 151
Qupperneq 152
Qupperneq 153
Qupperneq 154
Qupperneq 155
Qupperneq 156
Qupperneq 157
Qupperneq 158
Qupperneq 159
Qupperneq 160
Qupperneq 161
Qupperneq 162
Qupperneq 163
Qupperneq 164
Qupperneq 165
Qupperneq 166
Qupperneq 167
Qupperneq 168
Qupperneq 169
Qupperneq 170
Qupperneq 171
Qupperneq 172
Qupperneq 173
Qupperneq 174
Qupperneq 175
Qupperneq 176
Qupperneq 177
Qupperneq 178
Qupperneq 179
Qupperneq 180

x

Hugur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.