Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1983, Page 8

Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1983, Page 8
6 Vistheimiliö að Vífilsstöðum, opnað 1976 fyrir áfengissjúklinga. NÚVERANDISTARFSEMI Starfsemi geðdeilda ríkisspítalanna fer nú aðal- lega fram á tólf stöðum, Kleppsspítalanum, Land- spítalanum, Vífilsstöðum, bamageðdeild við Dal- braut og 8 hjúkrunar- og vistheimilum, sem dreifð eru víðs vegar um bæinn og nágrenni hans. A sjálf- um sjúkrahúsunum eru um 140 sjúklingar í sólar- hringsvist og um 50 í dagvist. Á dvalar- og vist- heimilunum eru rými fyrir 94 sjúklinga. Auk þess eru í ýmissi vist, sem er utan rekstrarsviðs rikis- spítalanna, 80-90 sjúklingar, sem fá þjónustu frá geðdeildunum. Þar með er talið heimili, sem fé- lagsráðgjafar spítalans sjá um, en dvalargestir greiða kostnað sinn sjálfir, annað hvort af eigin rammleik eða með aðstoð sveitarfélaga sinna. Göngudeildarstarfsemin fer aðallega fram á Kleppsspítalanum og Landspítalanum, en þar eru reknar 2 göngudeildir, önnur sérstaklega fyrir drykkjusjúka. Margur kann að spyrja hvort ekki sé óhagræði að því að hafa starfsemina svo dreifða sem raun ber vitni. Að sjálfsögðu er æskilegast, að hin eiginlega sjúkrahússtarfsemi sé öll á einum stað þar sem aðrar greinar lækninga eru stundaðar. En meðan ekki er hægt að koma allri starfseminni fyrir á Landspítalanum, er næstbesti kosturinn að hafa hluta starfseminnar þar og tengja hana annarri geðheilbrigðisþjónustu ríkisspítalanna, því að geðsjúklingar eiga samleið með öðrum sjúklingum og geðlækningar eru ein af stærstu greinum læknis- fræðinnar. Hjúkrunar- og vistheimili eiga hins vegar að vera dreifð um bæinn. Rekstrarlega er að þessu nokkurt óhagræði, en dreifing starfseminnar stuðlar að því að persónuleiki einstaklinganna fái notið sín og gerir meðferðina frjálslegri, en hvort tveggja eru meginþættir í nútíma geðlækningum. Jafnframt dregur dreifingin úr einangrun sjúkling- anna, sem áður var meginvandi, en nú þurfa þeir Guðríður Jónsdóttir, fyrrv. forstöðukona Klepps- spítalans, gaf spítalanum hús sitt að Reynimel 55, árið 1973. iðulega að fara milli staða vegna meðferðarinnar. Þessi dreifing starfseminnar gerir mikla kröfu til stjórnarinnar, og á hjúkrunarforstjóri spítalans, sem mest hefur mætt á í þessu sambandi og virðist nánast óþreytandi, miklar þakkir skildar fyrir ómetanleg störf í þágu sjúklinganna og geðdeild- anna. Dagdeildin, sem tekin var í notkun á 75 ára afmæli spítalans, hafði verið lengi á döfinni, en dregist að ljúka henni vegna fjárskorts. Deildinni er ætlað að rúma 20 sjúklinga auk kostgangara frá heimilum spítalans, sem koma þangað til iðjuþjálf- unar og starfsendurhæfingar. Húsnæði deildarinn- ar er hannað með tilliti til þess, að hún muni njóta ýmissar starfsaðstöðu utan hennar með öðrum deildum spítalans. Við deildina starfa fyrst um sinn geðlæknir, 2 hjúkrunarfræðingar, sálfræðingur og félagsráðgjafi, auk aðstoðarfólks. VERKEFNINÆSTG ÁRA Þrátt fyrir úrbætur, sem gerðar hafa verið hvað húsakost varðar og aukningu mannafla, vantar enn verulega á að mætt sé þörfum landsmanna fyrir geðheilbrigðisþjónustu. Er þar hvort tveggja, að enn þarf að auka við sjúkrahús og annað dvalar- rými og bæta það sem fyrir er, og jafnframt að fá meiri sérmenntaðan mannafla til starfa. Auk þess þarf að gera, í ríkara mæli en áður hefur verið, ráð fyrir endurmenntun og símenntun allra starfs- manna geðdeildanna þannig, að þeir geti sem best aðlagað sig breytilegum þörfum sjúklinganna. Brýnustu verkefni á næstunni eru: 1) Ljúka þarf lagfæringu sjúkradeilda Kleppsspítalans þannig, að þær svari kröfum tímans, bæði vegna sjúklinga og starfsliðs. Þegar hafa verið gerðar teikningar að þeim breytingum og að aðalinngangi og tengingu deildanna. 2) Ljúka þarf byggingu geðdeildar Landsspítalans. 3) Heimild til að ráða starfsfólk að
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.