Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1983, Síða 13
11
fjöldi 1. MYND.
•V
þurfi sjúkrahúsvistar með. Tveir síðast töldu
flokkamir eru teknir saman á 1. mynd. Af þessum
162 sjúklingum, sem vantar sjúkrahúsvist, eru 29
með psychosis manio-depressiva, 12 með schizo-
phreni, 23 með neuroses, 27 alcoholistar, 50 með
ýmsa aðra geðsjúkdóma, og 11 með vefræna
taugasjúkdóma.
Reykvíkingar meðal sjúklinganna eru samtals
909 eða 14,8%c íbúanna í Reykjavík í árslok 1952
(61.136), en aðrir landsmenn 598. Skýringin á
þessum mikla mun, þó að tekið sé tillit til, að
skýrslur vantar frá 20 héraðslæknum, kemur í ljós,
ef athuguð er aðsókn að sérfræðingum og í hvaða
sjúkdómaflokkum Reykvíkingarnir aðallega eru
fjölmennari. Rúmlega þrír fjórðu hlutar þeirra
sjúklinga, sem eru hjá sérfræðingum utan sjúkra-
húsa, eru Reykvíkingar og rúmlega tveir þriðju
hlutar allra sjúklinga, sem eru hjá sérfræðingum,
eru Reykvíkingar. Mestur er munur þessi meðal
neuroses, alcoholismus og psychoses senii. Að
þessum mun stuðlar, að í Reykjavík er stórt elli-
heimili með hjúkrunardeild, hér er nýstofnuð
áfengisvarnarstöð, Reykjavíkurbær hefur sérstakt
þurfamannahæli og loks hafa sjúklingar í Reykja-
vík miklu greiðari aðgang að sérfræðingunum, sem
allir eru búsettir þar, heldur en sjúklingar utan af
fjöldi 2. MYND.