Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1983, Síða 21

Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1983, Síða 21
19 Jakob Jónasson AFTUR í ALDIR Hugleiðingar um lýsingar á geðrænum sjúkleika í miðaldabókmenntum Á þúsund ára tímabili miðalda, frá um 500 til um 1500 e.Kr., voru öll fræði lækna hneppt í kenningakerfi Galenosar, sem grundvallaðist á sambræðslu úr forngrískri heimspeki og vessa- kenningu Hippókratesar (1). Upphaf hvers konar sjúkdóma var rakið til röskunar á eðlilegu jafnvægi höfuðvessanna fjögurra, blóðs, slíms, svarts og guls galls (1). Geðtruflanir voru einnig felldar inn í þetta kerfi og yfirleitt heimfærðar undir eitt og sama heitið — melancholia (melas gr.svartur, chole gr. gall), þar sem offramleiðsla á svörtu galli var talin aðalorsökin. Langlífi hinna galensku fræða í rösk 1400 ár átti sér rætur í „dómgreindarlausum bókstafsþræl- dómi“ þessara alda (2), en áhrifa þeirra á lækningar gætti þó ávallt lítt meðal almennings. Iðkendur læknislistar takmörkuðust við fámenna stétt í þjónustu höfðingja og var sá atvinnuvegur þó engan veginn girnilegur, því að læknendur áttu á hættu að verða drekkt í poka ef meðferðin mis- tókst (1). Allmargar lækningabækur voru ritaðar á þessum öldum, einkanlega eftir stofnun lækna- skólanna um miðbik tímabilsins, en fróðleikur þeirra einskorðaðist við forsendur Galenosar og kom því að litlu haldi. Alþýða manna bjargaði sér sjálf við hindurvitni sín og skottulækningar eða leitaði á náðir klaustranna þegar mikið lá við. Engar öruggar heimildir eru fyrir hendi um við- horf almennings til geðtruflana á þessu tímabili eða hugmyndir hans um orsakir og eðli slíkra fyrir- bæra. Miðaldakirkjan er jafnan bendluð við kenn- inguna um djöfulæðið, en mikilvægi hennar hefur að líkindum verið stórum ýkt og afbakað í tímans rás. Leikmenn hafa þó ekki verið eins skyni skroppnir í þessum efnum og ætla mætti af hind- urvitnaskrám og trúarsetningum. Rannsóknir á frönskum fagurbókmenntum miðalda hafa leitt í ljós, að hugmyndir höfundanna um geðtruflanir taka skoðunum læknisfróðra samtíðarmanna fram um skilning og raunsæi. Wright (3) vitnar í lýsingar á sturlun í frönskum ljóð- og riddarasögum frá 12., 13. og 14. öld og getur m.a. sérstaklega sögunnar um Ivent, einn af riddurum hringborðsins hjá Artúsi konungi. íventssaga Artúskappa (fr. Ivain) er ljóðsaga frá síðari hluta 12. aldar og var hún þýdd á tslensku úr frönsku í Noregi á dögum Hákonar gamla. ÍVENTSSAGA Ivent er að líkindum fyrsta söguhetjan í frönskum bókmenntum sem slegin er geðtruflun (3), og eiga þau umbrot sér stað er hann fær þá orðsendingu frá sinni frú, að hún segi honum upp, þar eð hann hafi ekki komið heim frá burtreiðum á umsömdum tíma, heldur látið hana bíða í þrjú misseri. í íventssögu er atburðarásinni lýst á eftir- farandi hátt (stytt): „Herra ívent þagnaði og vissi ekki hverju hann skyldi svara, því að bæði hvarf honum orð og viska. Hann angraðist af harmi og vildi nú þangað fara, sem engi maður þekkti hann. Hataði hann þá ekki jafnmjög sjálfan sig, og féll þá á hann svo mikið æði, að hann vildi hefna á sjálfum sér, því að hann hefir nú týnt allri sinni huggun. Hann fór þá einsaman, því að hann vildi ekki huggast af þeirra orðum. Hann hljóp úr land- tjaldinu til skógar. Týndi hann þá mjög svo öllu vitinu og reif af sér klæðin. Og er hann hafði lengi hlaupið, þá mætti hann einum sveini, er fór með boga og örvar fimm. Hann tók af sveininum bogann og örvarnar og hljóp á skóginn og skaut sér dýr og át hrátt kjöt þeirra. Og er hann hafði lengið hlaupið, hitti hann hús eins heremita. Og er einsetu- maðurinn sá hann, þá vissi hann, að hann hafði ekki fullt vit sitt. Hann gaf honum brauð og vatn, því að hann hræddist hann og vísaði honum á brott og bað þess guð, að hann kæmi þar aldrei oftar Ivent át brauðið, þó að það væri illa bakað, því að það var blautt og sáðugt. Aldrei át hann verra brauð. Og þegar hann var mettur, hljóp hann aftur í mörkina.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.