Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1983, Page 25

Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1983, Page 25
23 stefnt að aflétti einkennanna og bættri líðan sjúkl- ingsins. Hins vegar er auðvelt að skoða þetta mynstur að verki í dáleiðslu, þar sem innleiðslan í transinn byggist að miklu leyti á þversögnum, mót- staða sjúklingsins er nýtt í hans eigin þágu og hægt er að framkalla terapeutiska breytingu á nokkrum mínútum. Allar geðlækningaraðferðir hafa í raun- inni dáleiðsluna að fyrirmynd um samskipti lækn- anda og sjúklings (8). Porgeröur hefur meðferð sína með því að gangast inn á þau einkenni Egils að svelta sig til bana og gefur þar með í skyn að hún ætli að láta hann halda þeim einkennum áfram (paradox). Hún gengur meira að segja sjálf inn í einkenni hans og segist ætla að fara sömu leið og hann. Við þessa yfirlýsingu verður Agli svo hverft, að hann sprettir frá lokunni svo að Þorgerður kemst upp í hvílu- gólfið og leggst þar í aðra rekkju við hliðina. Með þessari athöfn kemst hún í beint og náið samband við hann og þar með er ísinn brotinn til frekari aðgerða. Því næst beitir hún Egil brögðum svo að hann megi nærast, en næring er vitaskuld fyrsta skilyrðið til að koma sveltandi sjúklingi úr bráðri lífshættu. í bragði Þorgerðar felst jafnframt út- smogin terapeutisk erting því að bragðið reitir Egil til reiði, hann „beit skarð úr horninu allt er tennur tóku“ og kastaði síðan. En slík reiðiviðbrögð eru jafnan fyrstu merki um breytingu til batnaðar hjá þunglyndissjúklingum (9). Þegar Þorgerður hefur bjargað Agli úr bráðri lífshættu og fengið hann til að bregðast við til- finningalega, leggur hún fyrir hann raun með því að hvetja hann til að yrkja kvæði og notfærir sér þar með óbeint þá mótstöðu sem felst í athafnaleysi hans og einangrun. Samtímis lætur hún hann halda einkennum sínum með því að gefa í skyn að á eftir muni þau bæði deyja „ef okkur sýnist" og býðst til að rista kvæðið jafnóðum á keflið til að halda honum þar með örugglega við efnið. Egill maldar fyrst í móinn og ber við getuleysi að hætti þunglyndissjúklinga, en þegar Þorgerður skírskotar til siðferðisskyldu hans gagnvart Böðvari, þá lætur hann til leiðast að „freista þess“ og yrkir þá Sonatorrek. Sonatorrek er talið eitt merkilegasta kvæði í bókmenntum norrænna þjóða á miðöldum, því að þar er í fyrsta skipti gert að yrkisefni persónulegt tilfinningalíf höfundarins sjálfs (6). Kvæðið er ein- ungis varðveitt í pappírshandriti frá 17. öld og samkvæmt sagnfestukenningunni íslensku á það að hafa gengið í munnmælum í 300 ár áður en það var upphaflega fært í letur á öndverðri 13. öld, þegar Egils saga var sett á bók. „Lætur þó að líkum að margt hafi brenglast, er kvæðið geymdist fyrst í manna minni um þriggja alda skeið og síðan selflutt í uppskriftum í fjórar aldir“ (10). Kvæðið er samansett af 25 vísum, ortum undir kviðuhætti, og lætur nærri að önnur hver þeirra hafi afbakast svo mjög í meðförum að torvelt er að ráða í merkingu heilla vísuorða, einkanlega heita og kenninga. Fræðimenn hafa að vísu reynt að lagfæra textann, hver eftir sinni hugkvæmni, en slíkur samsetningur hlýtur að orka tvímælis, þar sem upprunalegi text- inn verður auðvitað aldrei leiðréttur með tilgátum. Þegar á hinn bóginn öllum torskildum orðum og kenningum er sleppt og einungis látin standa þau vísuorð sem nútímamenn fá skilið án frekari útlist- ana, þá skilar kvæðið merkingu sinni engu að síður, a.m.k. í stórum dráttum. Kvæðið þjónar framar öllu sálfræðilegum til- gangi og túlkar geðástand Egils á þeirri stundu sem hann yrkir það í lokrekkjunni á Borg. En þar að auki birtist í kvæðinu framvinda þeirra sálrænu ferla sem einkenna sérhvert þunglyndiskast frá upphafi til enda. Atburðarásin gerist að vísu á skömmum tíma, samkvæmt kröfum skáldverksins, og fer að því leyti í bága við sjálfan raunveruleik- ann. Kvæði á borð við Sonatorrek verða heldur ekki ort í einni svipan, allra síst undir fargi þung- lyndis. En háttur tjáningarinnar og gangur ein- kennanna samræmist hinni klinisku mynd þung- lyndishviðunnar. „Mjög erum tregt tungu at hræra“ Þessi upphafsorð kvæðisins lýsa í bókstaflegum skilningi fargi þunglyndisástandsins og hinni lam- andi tregðu í tali og hugsun, andlegri og líkam- legri. Tregðunni er tileinkuð enn þyngri áhersla í áframhaldinu þegar Egill endurtekur í tveim fyrstu vísunum sömu hugsunina fimm sinnum með til- breytingu í orðavali (11). Eftir að losnað hefur um erfiðustu tregðuna tekur hann að rekja raunir sínar (4. vísa) og festist þá þegar í þráhugsun um enda- lok ættar sinnar, enda virðist togstreitan í sam- bandi við þá tilhugsun eiga hvað mestan þátt í sjúkleika Egils. í þessu samhengi leitar hugur Egils til fortíðarinnar og dvelst við fráfall föður síns og móður (5. vísa), en sú endurminning gerir sonar- missinn enn sárari, því að skarðið í frændgarðinn stendur þá „ófullt ok opit“ (6. vísa). Sárindin magnast upp í kveinstafi um harðneskju Ránar og eigið umkomuleysi (7. vísa), og þegar gremjan hefir kraumað um stund sýður loks upp úr og reiðin brýst út í allri sinni kynngi. Egill hefir í
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.