Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1983, Page 47

Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1983, Page 47
45 Helgi Kristbjarnarson RANNSÓKNIR í TAUGALÍFEÐLISFRÆÐI Fram á þessa öld snerust læknisfræðilegar rann- sóknir á taugakerfi manna og dýra einkum um gerð þess og útlit, en á fyrri helmingi þessarar aldar kom fram ný vísindagrein sem rannsakaði starfsemi tauganna, þ.e.a.s. taugalífeðlisfræðin. Margir hafa lagt hönd á plóginn til aukins skiln- ings á starfsemi tauga og taugakerfa. Dale útskýrði starfsemi taugatengsla (synapsa), Rushton út- skýrði flutning boðspennunnar, Katz myndun boðefnaskammta (quanta) o.s.frv. En af mörgum ágætum verkum á þessu sviði hygg ég að hæst beri rannsóknir þeirra Hodgkins og Huxleys, sem settu árið 1951 fram nákvæmt stærðfræðilegt líkan um hvernig jónastreymið gegnum frumuhimnuna væri og hvaða spennubreyting hlytist af því (1). Þetta líkan, sem þeir fengu Nóbelsverðlaun fyrir, hefur í aðalatriðum staðist tímans tönn og orðið horn- steinn skilnings okkar á starfsemi tauga. Eftir miðja öldina fór áhugi manna smám saman að beinast aftur í auknum mæli að gerð tauga og kom þar margt til, m.a. tilkoma rafeindasmásjár- innar og vaxandi þekking manna á lífefnafræði. Árið 1972 settu Singer og félagar fram kenningu um gerð frumuhimnunnar sem almennt er nú við- urkennd (2). Hún er í stórum dráttum á þá leið að frumuhimnan sé tvöfalt lag af fitumólikúlum sem snúi vatnssækna hlutanum út og í þessu lagi fljóti prótínmólikúl, sem ýmist nái hálfa eða alla leið gegnum frumuhimnuna. í h'kani þeirra Hodgkins og Huxleys er gert ráð fyrir að í frumuhimnunni sé flutningskerfi fyrir saltjónir, einkum natríum og kalíum, og hafa menn hugsað sér þetta flutnings- kerfi með tvennu móti. Sumir telja að lítil prótín- mólikúl bindist jónunum og flytjist yfir á hina hlið frumuhimnunnar þar sem þau sleppi mólikúlinu (carrier model), en aðrir telja að prótín myndi hol göng gegnum frumuhimnuna sem séu af hæfilegri stærð til þess að hleypa í gegnum sig jónum af tiltekinni stærð (ion channel model). Þessi síðari skýring hefur á síðustu árum átt mestu fylgi að fagna og kemur þar margt til. í ljós hefur komið að viss efni hindra streymi ákveðinna jóna gegnum frumuhimnuna en hafa engin áhrif á aðrar jónir. Þannig hindrar t.d. tetraethyl ammonium (TEA) streymi kalíums, en hefur lítil áhrif á natríum- strauma. Efnið tetrototoxin (TTX) hefur hins vegar áhrif á natríumstrauma, en ekki kalíum- straum. Síðasta áratuginn hafa menn reynt að gera sér mynd af því hvemig jónagöngin líti út. Þannig hefur t.d. Clay Armstrong, á grundveili rannsókna á áhrifum ýmissa hemjandi efna á kalíumkerfið (3), komist að þeirri niðurstöðu að kalíumgöngin séu u.þ.b. 3 Á í þvermál þar sem þau eru þrengst, en þar sem þau opnast á innra borði séu þau u.þ.b. 8 A í þvermál. TEA mólikúlið er einmitt um 8 Á og gæti því sest í þessi göng. Lífefnafræðingar hafa reynt að einangra þau prótín í frumuhimnunni sem mynda jónagöngin. Þetta hefur nú tekist með þau jónagöng sem acetylcholine stjórnar opnun á, en ekki með hin spennustýrðu jónagöng taugaþráðarins (4). Það sem sannar að hér sé um virk jónagöng að ræða er að tekist hefur að koma þessum prótínum fyrir í örþunnu lagi af olíu sem aðskilur tvær saltvatns- upplausnir. Kemur þá í ljós að natríumleiðnin í gegnum þetta þunna olíulag breytist þegar acetylcholin er bætt í upplausnina (5). Það er ljóst að séu jónagöngin prótín, hlýtur framleiðsla þeirra að stjórnast af kjarnasýrum og vera háð ýmsum þáttum, líkt og önnur prótínframleiðsla. Kandel hefur nýlega sett fram þá kenningu (6), eftir rann- sóknir á taugakerfi snigla (Aplysia), að minni sé í því fólgið að fjöldi jónaganga, sérstaklega í og við taugatengsl (synapsa) beytist með prótínsyntesu og þar með breytist gangur taugaboða í heilanum. Mælitækin sem notuð eru við taugalífeðlisfræði- Iegar rannsóknir eru stöðugt að verða fullkomnari eftir því sem rafeindafræðinni fleygir fram. Það sem gerði Hodgkin og Huxley upphaflega kleift að setja fram líkan sitt um jónastrauma var svo nefnd spennuþvinga eða voltage clamp. Það er búnaður sem heldur himnuspennu óbreyttri við ákveðið stillanlegt stig, en mælir strauminn sem sú spennu- breyting veldur. Upphaflega voru þessar rann- sóknir gerðar á kolkrabbataugum, sem eru býsna stórar, geta verið upp í 1 mm í þvermál, og það sem mælist er þá meðaltalsstraumur frá milljónum jónaganga. Þegar Frankenhaeuser tókst árið 1958
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.