Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1983, Side 63

Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1983, Side 63
61 Hins vegar virðist ein helsta úrlausnin vera að fjar- lægja unglinginn úr umhverfinu, en tæplega fjórð- ungi (22,4%) hafði verið komið í sveitardvöl. Ýmsar aðrar stofnanir (endurhæfingarstofnun, heilsuhæli) höfðu líka verið notaðar í svipuðum tilgangi. Ef við lítum á þann hluta hópsins, sem var lagður inn á sjúkrahús eða dvaldi á unglingaheimilum, dvaldi 50% skemur en 2 mánuði. Tæplega fjórð- ungur dvaldi 3-5 mánuði og rúmlega fjórðungur meira en 6 mánuði. Alls voru 40 unglingar lagðir inn á geðdeildir á þessum tveimur árum. Ef við víkjum aftur að þeim vanrækta hópi, sem enga meðferð hefur fengið, og skoðum hann í tengslum við það umhverfi, sem unglingurinn elst upp í, kemur í ljós að minnst er aðhafst, ef ungling- urinn er alinn upp á heimili þar sem ekki er um önnur skráð vandamál að ræða. Petta má sjá á töflu VII. Ef um þau er að ræða, aukast líkur á því að unglingurinn verði fjarlægður og sendur í sveit eða á stofnun. Sú meðferð, sem þessi unglingahópur hefur fengið, er því greinilega mótuð af þeirri af- stöðu að losna við unglinginn. Ef ekki er hægt að koma honum á dvalarstofnanir, virðist dvöl á heimili í fjarlægri sveit vera notuð sem úrræði. Munurinn á aðstoð eftir því umhverfi, sem ung- Iingurinn kemur úr, er marktækur. UMRÆÐA Eins og komið hefur fram voru helstu einkenni unglinganna í rannsóknarhópnum kvíði, þung- lyndi, skóla- og hegðunarvandamál, afbrot og áfengisneysla. Þessi atriði gefa til kynna að um dæmigerð unglingavandamál sé að ræða. Það sem mælir gegn þeirri röksemd er, að stór hluti hópsins hefur átt við langvarandi vandamál að etja. Borið saman við niðurstöður úr könnun Sigurjóns Björnssonar á börnum í Reykjavík er rannsóknar- hópurinn frábrugðinn að því leyti, að hann hefur miklu sjaldnar alist upp hjá kynforeldrum en almennt gerist (1,2). Þá hefur meira en helmingur unglinganna verið alinn upp við afbrigðileg uppeldisskilyrði. Algeng- asta vandamál foreldranna var áfengismisnotkun. Til samanburðar má geta þess, að í könnun á ungum áfengismisnotendum kom í ljós, að fleiri í þeim hópi en í samanburðarhópi áttu feður, sem misnotuðu áfengi (3). í sömu rannsókn kom það einnig fram, að fleiri úr þeim hópi sem misnotaði áfengi voru úr rofnum fjölskyldum en í saman- burðarhópnum. Þeir unglingar, sem hér hefur verið fjallað um, hafa því margir hverjir kynnst foreldravandamálum og fæðst inn í umhverfi þar TAFLA VI IMeðferð Fjöldi Hlutfall Engin meðferð 34 27,2 Meðferð án innlagnar 17 13,6 Sveitadvöl, heimavistarskóli 28 22,4 Geðdeildir, innlagnir 41 32,8 Upptökuheimili, skólaheimili 20 16,0 Aðrar stofnanir 8 6,4 Annað TAFLA VII 4 3,2 Meðferð og uppeldisaðstæður Eðlilegt Afbrigðilegt umhverfi umhverfi Alls Hlutfall Hlutfall Hlutfall Engin meðferð 45,9 20,3 27,2 Meðferð í eigin umhverfi 13,5 13,0 13,6 Fjarlægður 40,5 66,7 59,2 Heildarfjöldi 37 69 106 Vantar upplýsingar 19 X2 = 8,3235 df = 2 p < .02 sem vandamál voru fyrir. Það hefði því verið hægt að ná til þessa hóps í gegnum þá aðila í þjóðfélag- inu sem væntanlega hafa aðstoðað foreldrana. Unglingarnir hefðu í sumum tilvikum ekki þurft neina sérstaka aðstoð sem slíkir, heldur sem hluti af fjölskyldu. Þessum hópi hefði því mátt hjálpa með raunhæfri aðstoð við foreldra, en þó án þess að unglingurinn í fjölskyldunni gleymdist. Sá hópur, sem hér hefur verið greint frá, er trúlega í hópi þeirra unglinga, sem flest vandamál og alvarlegust höfðu. Þetta er fámennur hópur og í honum eru fleiri piltar en stúlkur. Af hverjum 1000 piltum á aldrinum 13-19 ára eru það 2,4 og 1,6 stúlka af hverjum 1000 á sama aldri sem árlega þurfa á mikilli aðstoð að halda vegna geðrænna vandamála. Þennan mun á piltum og stúlkum má að einhverju leyti rekja til þess, að vandamál pilt- anna voru oftar hömluleysi og umhverfiserfið- leikar, en stúlkumar voru fleiri í hópi þeirra, sem þjáðust af kvíða og þunglyndi. Það er því sennilegt, að oftar sé kvartað undan vandamálum piltanna en stúlknanna, þar sem þeir skapa meiri truflanir í umhverfinu. Vandi stúlknanna á þessu sama aldursskeiði kann að vera jafn mikill, en ekki jafn sýnilegur. Slíkt verður ekki kannað nema með faraldsfræðilegum rannsóknum á unglingum. Þær niðurstöður úr forkönnun á unglingum með
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134

x

Læknablaðið : fylgirit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.