Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1983, Page 81

Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1983, Page 81
79 brugðnar aðstæðum landmanna. Þeir þurfa að bogra mikið og vinna oft í kulda og vosbúð. Þá þykja þeim mannaskipti of ör og að starfið sé van- metið af öðrum, enda eru margir þeirra að hugsa um að skipta um starf. Ekki kemur á óvart, að meira en helmingi sjómannanna finnst slæmt að búa við óvissu um afla og tekjur, en slíkt á ekki við um landmenn. Þótt þau atriði, sem hér hafa verið talin, séu merki um óþægilegar vinnuaðstæður, þurfa þau ekki endilega að valda streitu. Nokkur þeirra tengjast mælikvörðum okkar á streitu og gætu því verið streituvaldar. Ekki eru þetta þó fremur þau atriði, sem flestir svara játandi, þannig að margir hinna hugsanlegu streituvalda taka aðeins til lítils hluta mannanna. Fimm atriði, sem yfir helmingur sjómanna kvartar um, tengjast streitu, tvö þeirra báðum mælikvörðum hennar, 1) að bogra mikið og 2) kuldi og vosbúð. Önnur atriði, sem tengjast streitu, eru 3) að þurfa að bregðast skjótt við án fyrirvara, 4) að starfið sé vanmetið af öðrum, og 5) hugmyndir um að skipta um starf. Ekkert þeirra atriða, sem meira en helmingur landmanna svarar, tengist mælikvörðum á streitu, en hjá þeim þriðj- ungi landmanna, sem eru að hugsa um að skipta um starf, eru að meðaltali meiri streitueinkenni en hjá hinum, eins og reyndar gildir einnig um sjó- mennina. Nokkur atriði til viðbótar tengjast streitu, þótt þau gildi aðeins um minnihluta þátttakendanna. Um þriðjungur sjómannanna telja starfið krefjast of mikils vinnuhraða, og má sjá marktækt meiri streitueinkenni hjá þeim hópi en hinum. Er þetta í samræmi við önnur svör um vinnuálag sjómanna. Aðeins 4% landmanna svara þessari spumingu játandi. Fleiri sjómenn en landmenn telja sig hafa of langan vinnutíma, en lengd vinnutímans er þó meiri streituvaldur hjá landmönnum. Hins vegar er slæmur samstarfsandi erfiðara mál hjá sjómönnum en landmönnum, þótt sjaldgæfari sé, og er ekki að undra þótt hið þrönga og nána samfélag sjómanna þurfi að vera gott til þess að þeim líði vel. Nokkrir menn í báðum hópunum eru oft í óvissu um hvernig vinna á verkin og í báðum tilvikum tengist það meiri einkennum um streitu. Þegar borin eru saman svör hópanna varðandi áhrif starfsins á einkalíf þeirra (tafla VI) kemur fram mjög verulegur munur á aðstæðum sjómanna og þeirra, sem vinna í landi. Langflestir sjómann- anna telja frítíma sinn í landi of lítinn og að ekki gefist tími til að reka nauðsynlegerindi. Sömuleiðis raskar sjómennskan eðlilegum tengslum við fjöl- skyldur þeirra og veldur þeim spennu. Flestir þeirra, sem áttu konu og börn, töldu slæmt að vera í burtu frá þeim. (Hér ber að athuga, að hlutfalls- tölur um þessi atriði í töflu svara til nær allra, sem áttu konu eða börn). Þá taldi meirihluti sjómanna sig ekki geta sinnt áhugamálum sínum, eins og íþróttum og félagsmálum, á þann hátt, sem þeir hefðu kosið. Ekkert þessara atriða var vandamál fyrir meirihluta landmanna. Meðal þessara atriða eru einnig mörg, sem tengjast streitu hjá meirihluta sjómanna, en engin hjá Iandmönnum. Níu af hverjum tíu sjómönnum töldu sig hafa of lítinn tíma til persónulegs erinda- reksturs og eru spenntir, þegar þeir koma af sjón- um. Þessi atriði tengjast báðum streitumælikvörð- unum. Aðrir þættir, sem tengjast streitu hjá meiri- hluta sjómanna, eru þeir, að vera of lengi að heiman og geta ekki sinnt tómstundastörfum og félagslífi. UMRÆÐA í niðurstöðum okkar kom fram, að mun fleiri sjómenn en landmenn kvörtuðu yfir þeim vinnu- aðstæðum, sem tilgreindar voru í streituspurn- ingalistanum. Þetta má ef til vill að nokkru skýra með því, að spurningarnar eigi fremur við vinnuaðstæður sjómanna en landmanna, en sú skýring á þó aðeins við sumar spurn- ingarnar. Nærtækari og sennilegri skýring er sú, að vinnuaðstæður sjómanna séu erfiðari og þar sé fleiru ábótavant en hjá landmönnum. Kemur það heim og saman við niðurstöður úr læknisskoðun og viðtali (9), þar sem mun fleiri sjómenn en land- menn töldu vinnuálag vera verulegt eða mikið. Niðurstöður okkar benda einnig til þess, að vinnuaðstæður sjómanna hafi meiri áhrif á andlega líðan þeirra en vinnuaðstæður landmannanna, sem er ekki að undra í sjálfu sér, þar eð sjómennskan tekur upp miklu meiri tíma af lífi sjómannsins en fjölskylda og félagslíf. Það er athyglisvert, ef litið er yfir töflu VI, að þau vandamál sjómannanna, sem tengdust streitu, varða mest heimkomuna eða hina stuttu dvöl heima á milli sjóferða. Eftirvænting, kvíði, spenna og þörf til að njóta miklu fleiri hluta en þeir ráða við, setur svip sinn á dvölina heima, og afleiðingin verður trúlega oft ófullnægja og von- brigði með heimkomuna. Kynlíf er eitt af því, sem sjómennskan setur sínar takmarkanir á. Þannig töldu 74% sjómannanna sig fara á mis við nægjan- legt kvnlíf, sem þó í sjálfu sér tengist ekki streitu. Hins vegar sýndu þau 16%, sem ekki gátu notið kynlífs sökum getuleysis, þegar heim kom, merki um taugaveiklun, en getuleysi í kynlífi stafar iðu- lega af spennu og eftirvæntingu.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.