Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1983, Page 86

Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1983, Page 86
84 Ath. Myndir 1 og 2 á bls. 84 og 86 hafa víxlast, þ.e. aðeins myndirnar sjálfar, en ekki mynda- textarnir. NYGENGI/100 000 IBUA AFENGISLITRAR A IBUA 15ARA OG ELDRI 15ARA0G ELDRI Mynd 1. Breytingar á nýgengi (fyrstu komum í meðferð) eftir aldri og kyni 1951-1981. aldurshópum eöa íbúafjöldann á tilteknum svæð- um á landinu. Nýgengið er þannig reiknað sem fjöldi nýrra sjúklinga á 100.000 íbúa fimmtán ára og eldri. NIÐURSTÖÐUR Ljóst er þegar af yfirlitstöflunni yfir hópinn, sem leitað hefur meðferðar, að nýgengið hefur sveiflast mikið og orðið hæst þegar opnast hafa nýir með- ferðarmöguleikar, annars vegar á tímabilinu 1953- 1957, og hins vegar eftir 1976. Á töflu II er sýnt hvernig nýgengið hefur sveiflast á fimm ára tíma- bilum frá 1951-1980, annars vegar fyrir karla og hins vegar fyrir konur. Á þessari töflu sést, að nýgengið nær hámarki á tímabilinu 1976-1980, bæði hjá körlum og konum, og hefur meira en tvöfaldast frá næsta fimm ára tímabili á undan. Af þessari sömu töflu sést einnig, að nýgengið hjá körlum hefur áður náð hámarki á árabilinu 1956- 1960, en lækkað smám saman fram til 1971-1975. Hins vegar hefur nýgengið hjá konum nokkuð staðið í stað frá 1956-1970, en tvöfaldast þá á árabilinu 1971-1975, og tvöfaldast síðan aftur til árabilsins 1976-1980. Á sjötta áratugnum er hægt að líta sérstaklega á fimm ára tímabilið 1953-1957, en þá hófu starfsemi sína áfengisvarnadeild Heilsuverndarstöðvarinnar og hjúkrunarstöð Bláa bandsins. Á því tímabili var nýgengið 391 á ári af 100.000 körlum, eða næstum jafnhátt og á síðasta fimm ára bilinu, sem sýnt er á töflu II. Sé hins vegar litið á fjölda nýrra sjúklinga á árabilinu 1978- TAFLA II Nýgengi drykkjusýki á ári miðað við 100.000 íbúa 15 ára og eldri. Heildarfjöidi sem lcitaði meðferðar á hverju tímabili innan sviga. Tímabil Karlar Konur Samtals 1951-1955 1956-1960 1961-1965 1966-1970 1971-1975 1976-1980 298 ( 762) 330 ( 914) 201 ( 611) 171 ( 574) 158 ( 582) 391 (1570) 16 ( 41) 35 ( 96) 29 ( 88) 33 (108) 65 (237) 153 (612) 156 ( 803) 182 (1010) 115 ( 699) 102 ( 682) 112 ( 819) 272 (2182) 1981, hefur hann vaxið það mikið, að gera má ráð fyrir að nýgengið sé enn á uppleið. Fyrir utan sveiflurnar í nýgenginu, sem koma fram á töflunni, er mjög áberandi breytingin sem verður á hlut kvenna, en nýgengið meðal þeirra hefur nífaldast á þessum 30 árum. Einnig hefur hlutfallið á milli nýgengis meðal karla og kvenna breyst mjög veru- lega, frá því að vera um ein kona á móti hverjum nítján körlum upp í að vera ein kona á móti þremur körlum. Á mynd 1 sést hvernig nýgengið breytist með hækkandi aldri og framboði meðferðar á rann- sóknartímabilinu. Nýgengið hækkar ört með hækkandi aldri fram yfir þrítugt á fýrstu tveim fimm ára bilunum, og lækkar síðan nærri því jafn- ört eftir 30-34 ára aldur á fyrri hluta sjötta áratug- arins og eftir 40-44 ára aldur á seinni hluta þessa áratugar. Á fyrri hluta þess áratugar var áherslan á göngudeildarþjónustu og Antabus meðferð, en á seinni hluta áratugarins á innlagnir og meðferð eftir hugmyndafræði AA-samtakanna. Á sjöunda áratugnum og fyrri hluta þess áttunda, þegar með • ferðin er meira með hefðbundnu geðlækningasniði og hlutfallslega margir byrja meðferð á geðdeild, nálgast nýgengið hámark á milli tvítugs og þrítugs, en lækkar ekki verulega fyrr en um og undir fimmtugt. Á seinni helming áttunda áratugarins leggja geðdeildir vaxandi áherslu á göngudeildar- meðferð og stuttar innlagnir með hópmeðferð og fræðslu, jafnframt því sem sjúkrastöðvar SÁÁ taka til starfa, en þar er lögð áhersla á innlagnir á sjúkra- stöðvar, fræðslu og hugmyndir AA-samtakanna. Á þessu tímabili hækkar nýgengið ört fram til 35- 39 ára og lækkar síðan jafnt fram til sjötugs. Hjá konum hækkar nýgengið heldur hægar og nær há- marki milli 40-44 ára aldurs á áttunda áratugnum. Á töflu III má sjá, að meðalaldur þeirra, sem TAFLA III Meðalaldur þeirra, sem leituðu meðferðar vegna drykkjusýki í fyrsta sinn á árunum 1951-1981 eftir kyni og hvenær sjúkling- arnir komu. Meðalaldur Tímabil Karlar Konur 1951-1955 35,8 36,6 1956-1960 37,1 40,9 1961-1965 37,5 39,4 1966-1970 37,6 40,3 1971-1975 39,0 42,1 1976-1980 37,0 38,3 1981 36,4 37,5 1951-1981 37,2 39,4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.