Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1983, Page 100

Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1983, Page 100
hafa fleiri í meðferð sem búsettir eru utan Suð- vesturlands en aðrar stofnanir. Peir, sem fóru á erlendu stofnanirnar, eru flestir úr þeim hluta hópsins, sem er á miðjum aldri, fleiri karlar en konur miðað við innlendu stofnanirnar. Það vekur athygli hvað margir úr þessum hópi eru búsettir í nágrannabyggðum Reykjavíkur. Flestir byrjuðu í meðferð á Silungapolli. Samt virðist það vera þannig, að alls staðar leggist inn fólk, sem ekki hefur verið innlagt áður á tímabilinu. Að mörgu leyti virðast þeir hópar vera líkir sem fara á göngudeild áfengissjúklinga og á stofnanir SÁA (18). Þær stofnanir virðast því að einhverju leyti hafa fengið til sín fólk, sem að öðrum kosti hefði leitað til göngudeildar. A tímabilinu fjölgar bæði körlum og konum í meðferð, en konunum fjölgar hlutfallslega meira. Nærtækasta skýringin á því er sú, að aukin áfengis- neysla kvenna hafi leitt til aukinnar misnot- kunar. Fleiri konur en áður neyta áfengis og þær byrja fyrr að drekka. Kannanir á áfengisneyslu unglinga sýna, að piltar og stúlkur eru á líku reki, þegar þau byrja að neyta áfengis (5, 6). Þá benda rannsóknir til þess, að konur verði fyrr áfengis- sjúklingar en karlar, þar sem þær verði fyrr háðar áfengi en karlar og þróist hraðar í átt til mis- notkunar (21). Það er líka talið að umhverfið þrýsti fyrr á konur en karla til að fara í meðferð, eða að konur séu viðkvæmari fyrir slíkum þrýstingi (22). Álitið er að konur reyni að dylja áfengis- vandamál sín lengur en karlar (23). Ástæða þess sé, að samfélagið telji frávik frá almennum áfengis- neysluvenjum óæskilegt, en það sé miklu verra að konur misnoti áfengi en karlar. Sú mikla áhersla, sem stofnanir SÁÁ leggja á áfengissýki sem sér- stakan sjúkdóm, hefur hugsanlega höfðað sérstak- lega til kvenna, og dregið vanda þeirra meira fram í dagsljósið. Gera má ráð fyrir, að aukin áfengisneysla ungs fólks hafi haft í för með sér, að misnotendum í þeirra hópi hafi fjölgað. Þá er líka rétt að hafa í huga, að í könnunum á áfengisneyslu, neyslu- venjum og afleiðingum áfengisneyslu kemur yfir- leitt í ljós, að þeir sem drekka mest og hafa flest vandamál samfara því, eru ungir menn á aldrinum 20 til 29 ára (24, 25, 26). Þegar menn eldast, breyta þeir um lífsvenjur og neysluvenjur áfengis verða aðrar, oftast án þess að þeir fari í neina sérstaka meðferð. Á því tímabili sem hér hefur verið fjallað um, hefur einstaklingum, sem leggjast inn á sjúkrahús til meðferðar, ekki aðeins fjölgað, heldur hefur líka breyst hverjir leggjast inn vegna áfengissýki og annarrar vímuefnaneyslu. Konur fara í auknum mæli í meðferð og það sama má segja um ungt fólk. Þá hefur þeim, sem búsettir eru utan höfuðborgar- svæðisins, fjölgað, einkum körlum. Þessi þróun er að nokkru leyti í samræmi við þá breytingu sem hefur orðið á áfengisvenjum þjóðarinnar. Eins og rakið var hér að framan hefur áfengisneysla orðið almennari og nýir neytendur komið til sögunnar. Þeir hafa sérstaklega komið úr hópi kvenna og unglinga. Framboð á sjúkrahúsmeðferð vegna áfengissýki hefur aukist samtímis því, að nýir hópar áfengisnotenda hafa bæst í hóp þeirra sem fyrir voru. Hugmyndafræði hinna nýju stofnana, sem eiga stærstan þátt í auknu framboði á meðferð hefur verið sú, að leggja áherslu á misnotkun áfengis sem sjúkdóm, og það algengan sjúkdóm. Allir geti fengið þennan sjúkdóm og hann sé að finna í öllum stéttum, en ekki aðeins meðal utan- garðsmanna eins og almenningur taldi áður. Þá hafa ýmsir talsmenn þessarar hreyfingar komið fram sem áfengissjúklingar opinberlega og hefur það átt sinn þátt í því að menn dylja ekki áfengis- vandamál sín lengur, ef þeir geta litið á þau sem sjúkleika. Þetta hefur gert meðferð eftirsóknar- verðari en hingað til hefur verið. Það er ekki ótrú- legt, að hin mikla áhersla, sem lögð er á áfengis- misnotkun sem sjúkdóm, hafi haft áhrif á konur, ekki aðeins vegna þeirra eigin meðferðarþarfa, heldur hafi það líka orðið til þess að konur hvetji eiginmenn sína til að fara í meðferð, ef litið er á áfengisvandamál sem sérstakan sjúkdóm. Með því að leggja áherslu á sjúkdómshugtakið verður áfengisvandamálið heilbrigðisvandamál og afskipti löggæslunnar af því fara minnkandi. Þessi þróun hefur átt sér stað víða um lönd síðustu ára- tugi (9). Hún hófst hér á landi 1949 með setningu laga um meðferð ölvaðra manna og drykkjusjúkra. Auknir möguleikar á innlögnum hafa ýtt enn frekar undir þessa þróun. Þau boð hafa verið send til almennings, að áfengissýki sé miklu algengari en menn haldi og að áfengissjúklingarnir leynist víða. Það er því ekki ólíklegt að ýmis félagsleg vandamál oft tengd áfengi séu talin vera einkenni um áfengissýki og staðfesti, að hana sé víða að finna. Áfengi er þá talið orsakavaldur alls þess sem úrskeiðis fer. Með tilkomu starfsemi sjúkrastofnana SÁÁ hefur verið lögð aukin áhersla á meðferð áfengis- misnotenda á sjúkrahúsum. Á sama tíma hefur verið lögð vaxandi áhersla á göngudeildarstarfsemi í hinni opinberu heilbrigðisþjónustu. Ástæða er til þess að kanna nánar árangur og hagkvæmni þess- ara tveggja þjónustuforma.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.