Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1983, Side 108

Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1983, Side 108
106 hátt. Leysa má hluta af þessum vanda með því að fjölga geðheilbrigðisstarfsmönnum, en ekki er unnt að fjölga þeim svo, að þeir geti veitt öllum sjúklingum fullnægjandi meðferð og endurhæf- ingu. Væri það gert mundi meirihluti þjóðarinnar lítið gera annað en að sinna þeim stóra minnihluta, sem er með geðsjúkdóm eða á við alvarleg geðræn vandamál að stríða. Það er heldur ekki unnt að styrkja geðheilbrigðiskerfíð svo, að unnt sé að veita öllum sem þess þurfa, fullnægjandi þjónustu. Það mundi hafa í för með sér kostnað, sem þjóðin fengi ekki risið undir. Það er því augljóst, að æskilegt er að fyrirbyggja geðsjúkdóma, sé þess nokkur kostur. VIÐFANG Geðheilbrigðisstarfsmenn, sem vinna að geð- vernd, verða að skilgreina viðfang sitt vel. Þeir verða að gera sér ljósa grein fyrir því, hvaða fyrir- bæri þeir vilja leitast við að fyrirbyggja. Margir geðheilbrigðisstarfsmenn vilja ekki aðeins fyrirbyggja geðsjúkdóma heldur einnig geð- raunir, sem eiga rót að rekja til lífsvandamála, stórra og smárra, sem allir hljóta að standa frammi fyrir mörgum sinnum á lífsleiðinni (5). Þeir vilja í fýrsta lagi leysa lífsvandamál og fyrirbyggja geð- raunir vegna þeirra sálarkvala og erfiðleika, sem þær hafa í för með sér. í öðru lagi vilja þeir fást við þessi fyrirbæri vegna þess, að þeir telja að þau geti valdið geðsjúkdómum og að unnt sé að fyrirbyggja geðsjúkdóma með því að leysa lífsvandamál og fyrirbyggja geðraunir. Geðheilbrigðisstarfsmenn mega ekki missa sjónar á hinum mikla mun, sem er á geðraunum og geðsjúkdómum. Stundum er aðeins um stigmun að ræða, en geðsjúkdómar valda oftast miklu meiri sálarkvölum og erfiðleikum en geðraunir. Oft virðist vera um eðlismun að ræða. Ljóst er, að lífsvandamál geta valdið geðraunum en ekki eins ljóst, að þau geti einnig valdið geðsjúkdómum. Það hefur enn ekki verið sannað, að unnt sé að draga verulega úr algengi geðsjúkdóma með því að leysa lífsvandamál og fyrirbyggja geðraunir (6). Það er freistandi fyrir geðheilbrigðisstarfsmenn að vinna að lausn á lífsvandamálum og fyrirbyggja geðraunir. Það er líklegra til að bera góðan árangur og veita fullnægju í starfi en tilraunir til að fyrir- byggja geðsjúkdóma og lækna og endurhæfa geð- sjúklinga. En geðheilbrigðisstarfsmenn, sem vinna að geðvernd, hljóta að hafa það að meginmarkmiði að fyrirbyggja geðsjúkdóma. Þeir geta ekki leyft sér að nota mikinn tíma til að leysa lífsvandamál og fyrirbyggja geðraunir meðan ekki hefur tekist að sýna, að það dragi verulega úr algengi geðsjúk- dóma. AÐFERÐIR Fyrirbyggjandi aðgerðir geta því aðeins borið árangur, að þær hafi áhrif á orsakir geðsjúkdóma eða auki viðnám gegn þeim. Þekking á orsökum geðsjúkdóma er meginforsenda fyrir því að fínna aðferðir til að fyrirbyggja geðsjúkdóma og nota þær á áhrifamikinn hátt. Skipta má orsökum geðsjúkdóma í þrjá aðal- flokka, þ.e. líkamlegar, sálrænar og félagslegar or- sakir. Flestir geðsjúkdómar hafa raunar fleiri en eina orsök. Með sama hætti má skipta aðferðum til fyrirbyggingar eftir flokkum þeirra orsaka, sem þær beinast gegn. Rannsóknir hafa sýnt með vissu, að nokkrir geð- sjúkdómar hafa líkamlega orsök (1). Sem dæmi um slíkar orsakir má nefna sárasótt, pellagra, blýeitrun og hrörnunarsjúkdóma í miðtaugakerfi. Fundist hafa aðferðir til að fyrirbyggja suma af þessum geðsjúkdómum. Sem dæmi má nefna penisillíngjöf við sárasótt og niacingjöf við pellagra. En því miður eru engar aðferðir þekktar til að fýrirbyggja flesta geðsjúkdóma, sem hafa líkamlega orsök, t.d. hrörnunarsjúkdóma í miðtaugakerfi. Flestir geðsjúkdómar hafa ekki þekkta líkam- lega orsök. Sumir telja, að fýrr eða síðar muni finnast líkamleg orsök fyrir þeim öllum, en aðrir halda því fram, að margir þeirra hafi sálræna eða félagslega orsök. Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt marktæka fylgni með sálfræðilegum og félags- legum fýrirbærum annarsvegar og geðsjúkdómum hinsvegar. Það sannar þó ekki, að þessi fyrirbæri séu meðal orsaka sjúkdómanna. Fylgnina má skýra á annan hátt. T.d. geta sálfræðilegir eða félagslegir þættir og sjúkdómar, sem þeir eru í tengslum við, átt sameiginlegar en óþekktar orsakir. Einnig getur sjúkdómur verið orsök að sálrænum eða félagslegum þáttum, sem hann er í tengslum við. Taka má fátækt sem dæmi. Ljóst er að fátækt er í tengslum við geðsjúkdóma. Þannig er tíðni á geð- klofa meiri hjá fátækum en ríkum. Það sannar þó ekki að fátækt valdi geðklofa né heldur að upp- ræting fátæktar dragi úr nýgengi geðklofa. Það er eins líklegt að sjúklingur sé fátækur, af því að hann er haldinn geðklofa, eins og að hann sé haldinn geðklofa af því að hann er fátækur. Enda þótt tekist hafi að sýna fram á, að fjölmörg sálræn og félagsleg fyrirbæri eru í tengslum við geðsjúkdóma, hefur enn ekki tekist að sanna, að um orsakatengsl sé að ræða, nema í fáeinum til- vikum (2, 6). Þar til tekist hefur að finna slík or-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134

x

Læknablaðið : fylgirit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.