Sagnir - 01.06.1993, Blaðsíða 110
Nat Tumerhinn ógurlegi handtekinn eftir upprcisniiia 1831.
möguleika á að bæta hana, svo það er lítið
til að hvetja hann áfram til vinnu. Að
þessu leyti, mun þrælahaldið hafa verið
svo óhagstætt plantekrueigendunum og
þeim sem héldu þræla, að leitun mun
hafá verið að öðru eins. Þrælamir unnu
eins lítið og þeir komust upp með,
reyndu eftir mætti að minnka við sig
vinnuskyldu, settu steina og mold í
botninn á körfunum, sem þeir tíndu
baðmullina í, eyðilögðu verkfæri, fóru illa
með dýr, eyðilögðu ungar plöntur og
tíndu lélega baðmull.
George Mason frá Virginiu var einn
þeirra, sent var á móti þrælahaldi. I eft-
irfarandi grein sést, að ástæða þess, var
fyrst og fremst sú, að hann gerði sér grein
fyrir óhagkvæmni þess. Þó að ekki gæti
santúðar með þrælunum, er augljóst, að
þrælahald samræmdist ekki siðferðisvit-
und hans.
Þrælahald hefur letjandi áhrif á fram-
kvæmdir og handverk. Fátæklingar
fyrirlíta vinnu þegar hún er unnin af
þrælum. Þrælahald hindrar að inn
flytjist hvítir menn sent auðga þó
raunar og efla land okkar. Það hefur
hin skaðvænlegustu áhrif á siði ntanna.
Hver þrælaeigandi er fæddur
nánasarlegur harðstjóri. Það kallar yfir
þjóð hinn efsta dóm. Með því að þjóð-
um verður ekki umbunað eða refsað í
öðrum heimi verða þær að taka út sinn
dónr héma inegin. Það er eins víst og
að nótt fylgir degi að forsjónin refsar
fyrir syndir þjóða með því að leiða yfir
þær hönuungar.19
Þrælauppreisnir
Þrælarnir voru latir og ómögulegir i
augum bleiknefjanna. Fræðimaðurinn
Stanley M. Elkins segir, í greininni
Slavery and Negro Personality, að ánauð og
kúgun hafi áhrif á skapferli og persónu-
leika.2" Hann álítur, að þrælamir hafi
verið í svipaðri stöðu og gyðingar í fánga-
búðum nasista. Fanginn var sviptur öllu
og vaktaður stöðugt. Sýnt hefhr verið
fram á, að hann hafi orðið ósjálfstæður og
bamalegur og háður fángavörðunum,
jafnt andlega sem likamlega. Þetta telur
Elkins skýra það, hversu lítinn mótþróa
þrælamir hafi sýnt yfirvaldinu. Þær fau
uppreisnir sem þó vom gerðar, vom
undir forystu þræla, sem voru í allt
annarri aðstöðu en venjulegir plantekm-
þrælar, bæði læsir og menntaðir. Dæmi
um þá em Gabriel, járnsmiður, sent
leiddi uppreisn árið 1800. Denmark Ves-
ey, handverksmaður, frelsingi fæddur í
Afríku og hafði unnið nokkur ár á þræla-
skipi. Hann stýrði uppreisn árið 1822.
Nat Tumer, hinn ógurlegi, var prédik-
ari, læs og var lýst sem afburða gáfuðum
manni.
Þrælamir tóku lítinn, sem engan þátt
í frelsun sinni. Þeir vom ekki í aðstöðu til
þess á neinn hátt. Meðal þeirra myndaðist
hvorki stétt menntamanna, listamanna,
aðall né miðstétt, sem gæti myndað þrýsti-
hópa, eða orðið róttæk eða haft tækifæri til
að koma skoðunum á framfæri. Þeir vom
vopnlausir og sambandslausir og upp-
reisnir þeirra vom bældar jafnharðan.
Hvaðvar til ráða?
Suðurríkin vom hlynnt meira sjálfstæði
hvers ríkis, en Norðurríkin vildu meira
alríkisvald. Þetta átti að miklu leyti rætur
að rekja til þrælahaldsins. Suðurríkjamenn
vildu, að hvert ríki ákvæði fyrir sig; þeir
óttuðust um sjálfstæði sitt og þrælakerfið
gagnvart alríkisvaldinu. Spennan milli
norðurs og suðurs var stöðug. Suðurríkja-
menn óttuðust afnám eða takmörkun
þrælahalds. I þrælunum var gífurlegt
vinnuafl og mörgum hefiir staðið ógn af
fjölda svertingjanna, yrðu þeir fijálsir.
Víða vom svertingjar meirihluti íbúa og
enn víðar á bilinu 10-30%.
Að vísu fannst faum, sem vom á móti
þrælahaldi koma til greina, að veita
svertingjum borgararéttindi og flestir
hvítir vom sammála um yfirburði hvítra
yfir svörtum. Það var augljóst að aðskilnað-
ur hlyti að verða milli kynþáttanna. Fyrir
utan hugmyndir um að flytja fijálsa negra
„aftur heim“, sem urðu til þess, að
nýlendan Líbería var stofnuð í Afríku,
virðist fhrðu fatt hafá verið hugsað, eða sett
fxam um það, hvað ætti að verða unr leys-
ingjana ef þrælahald yrði afnumið. Þess
má geta, að tiltölulega fair fóm til
Líberíu. Félagið, sem hélt nýlendunni
uppi, American Colonization Society, gafst
upp á miklum kosmaði við það og hún
fékk sjálfstæði 1822.
Það var upphaflega Thomas Jefferson,
sent hafði haldið þvi fram, að andúð og
óvild milli svarta og hvíta kynstofnsins
væri svo djúpstæð, að frelsun þrælanna
væri óhugsandi án þess, að gerðar yrðu
ráðstafanir til að koma leysingjunum burt
úr landi. Svipaðra hugmynda gætti fram
yfir þrælastríö, en þá hvatti Abraham
Lincoln frelsingja til að stofna sína eigin
nýlendu á Haíti. Nokkrir fóru, en ævin-
týrið endaði illa og þeir sem lifðu af vom
fluttir heim aftur,2'
108 SAGNIR