Sagnir - 01.06.1993, Page 120

Sagnir - 01.06.1993, Page 120
1885. Að auki styðst ég við sendibréf frá konum, þau elstu frá um 1820 og þau yngstu frá því rétt eftir síðustu aldamót. Eg vil geta þess áður en lengra er haldið að konumar em ekki margorðar um sjálfar sig, hvorki í minningum sín- um, ljóðum né sendibréfum. Þær skrifa minnst um sjálfar sig sem sjálfstæðar til- finningaverur, heldur sem hluta af mik- ilvægari heild. Líkt og oft var raunin í lífi kvennanna, létu þær aðra ganga fyrir í skrifum sínum. Þær skrifá ekki til að halda sínum hlut á lofti, heldur annarra. Eða eins og Gunnþómnn Sveinsdóttir skrifar: „Og hollt er það hveijum manni, að rifja upp minningar um góða menn og mikilhæfa.”' Þarna er strax komin á- kveðin vísbending um sjálfsmynd ís- lenskra kvenna á 19. öld. Sjálf þeirra var léttvægt, fannst þeirn. I bréfum kvennanna sést hvað þeim þótti mest áríðandi að flytja fréttir af. Yf- irleitt var byrjað að lýsa heilsu, þá árferði og loks búskaparháttum. Einnig var samviskusatnlega sagt frá trúlofunum, andlátum og giftingum. Það sem einnig einkennir bréfáskrif kvennanna er guðhræðsla og auðmýkt gagnvart máttarvöldunum. Oft byrja þau og enda á ósk um guðsblesssun í einhverri mynd. Enda var almenningur algerlega háður duttlungum náttúmnnar með framfærslu sína og sinna. Að auki kváðu lög frá árinu 1746 á um guðrækni á heimilum. 2 Guðrækni var eitt af ein- kennun síðustu aldar og er því við hæfi að skoða þennan þátt í sjálfsmynd kvenn- anna. Taumhald trúarinnar Fingur Guðs mjer vísar veg; vil jeg móðrökk áfram halda, tilsjá hans því treysti jeg, torsótt mörg þó rísi alda. Lærði’ eg bam, við brjóst þín, móðir, að biðja þann, er skapti þjóðir3 Taumhald trúarinnar var mikið í öllu lífi almennings á síðustu öld og þá, rétt eins og nú, vom það einkum konur sem héldu trúrækni á lofti. Mæðumar kenndu börnum sínum bænir og sáu um uppeldi þeirra að mestu leyti. Það kom því í þeirra hlut að halda kristnum fræð- um að bömunum og gera þau að guð- hræddum og auðmjúkum þegnum þjóð- félagsins. „ Sií kona var ekki búleg sem lá í bókum Eins og ég gat um í inngangi, skrifa konur um sig sem hluta af mikilvægari heild. Þær voru lokaðar af inná heimil- unum í einkalífi sínu með eiginmanni, börnum og vinnuhjúum. Vinnukonur jafnt sem eiginkonur komust þannig í lida snertingu við annað en það sem bein- línis snerti þeirra afmarkaða heim, - heimilið. Karlinn var aftur á móti sá sem fór um og kynntist lífinu úti fýrir. Kvenfólkið virðist því hafá sökkt sér meira í guðhræðslu, alla vega í orði, en karlmenn. Heimurinn var illskiljanlegra fyrirbæri fyrir óupplýstar konurnar en karlana og þær því kannski meira uppá náð æðri máttarvalda kornnar. Þær vom aðeins léttvægur þráður í vef almættisins. Ef þær vom svo heppnar að hafa ein- hvem aðgang að ffæðandi riturn, dirfðust þær sjaldan að sökkva sér í bókalestur. “Kvenfólki fannst þá og hefur fundist til skamms tíma, það vera að stela tímanum, sem það notaði til þess að lita í bók, nema helst í guðsorðabækur á sunnudaga.”4 Aherslan á guðrækni, sem birtist í til- skipuninni um húsaga árið 1746, varð ansi langlíf frameftir 19. öld. Þannig átti helst ekkert að lesa annað en guðsorðabæk- 118 SAGNIR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.