Sagnir - 01.06.1993, Page 123

Sagnir - 01.06.1993, Page 123
að manninn “hendir sú slysni”, að leggja hug á aðra konu, og eignaðist hann bam með henni. Af þessu leiddi ósamlyndi mikið milli hjónanna. Ingunn spurði eig- inkonuna, að ósk mannsins, hvers vegna hún gæti ekki, þrátt fyrir hans einlægu iðmn, fyrirgefið honum og verið honum ja£n ástúðleg og áður. Svarið var á þessa leið: Hér er ekki aðeins um fyrirgefningu að ræða, “því að” sagði hún, “það er eins og ef Jón hefði limlest mig, svift nfig hönd eða fæti; það gæti ég fyrir- gefið honum, þegar ég sæi að hann iðr- aði þess, en mér væri ekki í sjálfsvald sett, að vinna jafnt fyrir hann á eftir, og gæti ekki látið Hminn vaxa aftur”.15 Ingunn líkir konunni við Brynhildi Buðladóttur, sem hvorki vildi Hfa sjálf, eða lofa Sigurði Fáfnisbana að lifá, effir að hann hafði bmgðist henni. Ekki er þó laust við að hún dáist að ástríðum sem þessum. Konur töldu sig ástríkari en karl- menn. A þessum tíma var viðurkennd og af fáum gagnrýnd, hugmyndin um kon- una sem tilfinningaveru en karlmanninn sent hinn harða baráttumann, sem aflaði konu og bami björg í bú. Því kemur ekki á óvart að lesa skrif Rannveigar Olafsdóttur Briem til bróður síns, séra Eggerts Brieni: Eg var heldur ekki búin að vera þér lengi samtíða, þegar mig fór að gmna brjóst þitt um heitari og meiri ást en almennt gjörist, og ég komst að þeirri niðurstöðu, að þú gætir elskað eins vel og kona, og frekar er ekki hægt að komast, ef miða skal við nokkuð hér í neðri byggðinni.16 A svipuðum nótum em orð Bríetar Bjamhéðinsdóttur í fyrirlestri hennar Um hag og réttindi kvenna. Hún segir: “...sýnist mjer ekkert vera ókvennlegra en mannúðarleysi, harðstjóm og ónær- gætni, og ekkert samkvæmara kvenn- legu eðli en ntannúð umhyggjusemi og nærgætni við þá, sem em undirgefnir.”17 Konurnar okkar áttu sér stundum kærasta á laun sem þær helltu úr skálum ástar sinnar yfir svo manni verður nóg um. ...hvað er ánægjulegra en að fa bréf ffá þér, elskuverðasti kærasti, þegar ert í fjarlægð, sjá þina gæsku og góða hjartalag í öllum greinum, já, sú á- nægja uppfylfir mitt hjarta með þá gleði, sem ég í mínum kringumstæð- um get fengið ... O, hvað ég er ánægð með minn yndis- legasta kærasta, með hans eðla rétt þenkjandi hjarta- lag, sem vissulega gerir hann og mig eilíflega lukkulega, æ, ég græt af gleði þá ég hugsa um það.18 Þrátt fyrir fjár- hagslegt ósjálfstæði sitt og réttleysi í þjóðfelaginu, vom konur oft viljugar til að reyna að standa á eigin fótum. Þær hlupu svo sannarlega ekki til að taka hvaða bónorði sent gafst. Þær áttu til mikla seiglu sem gat fleytt þeim yfir lífsins hjalla án eiginkarla. Karllausi kosturinn þótti þeim þó ekki mjög árennilegur, því eins og nú, bera tvö bök meiri byrðar en eitt. Kona skrifaði bréf 1851 og tekur þar töluvert dýpra í árina. Hún hreinlega segir: “Dauð er jafnan höfuðlaus kona heima, má ég segja eins og karlinn.”19 Að uppfylla sín skyldustörf Konur vildu standa sig sem best í hús- móðurhlutverkinu og höfðu áhyggjur af uppeldi bama sinna, eins og Sigríður Sveinsdóttir segir í tveimur bréfum til Kristrúnar Jónsdóttur fóstm sinnar árið 1860: Mínar mestu áhyggjur em nú það að geta uppalið þessi böm, sem guð gefur mér, svo þau geti snemrna lært að ganga á hans vegum, en það er nú vandaverkið, og ég svo lítið reynd og vankunnandi í því ... En ég kvíði mest fyrir sjálfri mér og treysti mér svo iUa til að uppfyHa mín skyldu- störf.20 Húsmóðurstarfið var áhygguefhi. Það þurfti að koma bömunum til manns og sjá um að aUt gengi vel fyrir sig innan- stokks. Að auki þessum áhyggjum höfðu konumar á endanum Htið vald til að taka og eigmst börn í iieilögu lijómbaudi. ákvarðanir um mál barna sinna. Þær hafa kannski verið einskonar umsagnaraðili en endanlegt úrsfitavald hafði heimifisfaðir- inn, eiginmaðurinn. Dæmi um það er að fmna í bréfi Dómhildar Briem til eigin- manns síns Olafs Briem árið 1851. Eg ætla að biðja þig að afiáða ekkert urn að koma Eggert okkar fyrir í Hmna. Eg get ómögulega látið hann burt svona ungan, hann er ekki nema 11 ára enn. Ef hann lifir og þú vilt láta hann læra þess háttar, sem þér datt í hug í vetur, er nógur tíminn ... Þú sagðir í vetur þú spyrðir mig ekkert að því, þó þú kæmir honum fyrir í Hmna, en því betur ætla ég að biðja þig fyrir að ráða það ekki fyrir fhUt og fast í þetta sinn.21 Móðurástin tók dijúgan hluta af hjarta kvenna; bamaumönnun tók dijúgan Konur áttu að elska SAGNIR 121
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.