Frjáls verslun - 01.04.2014, Page 16
16 FRJÁLS VERSLUN 4. 2014
Þ
rettán dauðsföll vegna
framleiðslugalla. Það er
erfitt fyrir bílasmiðju að
verða að viðurkenna að
ótal óhöpp hafa orðið
vegna þess að einn maður í fyrir
tækinu var ekki starfi sínu vaxinn og
hannaði gallaðan kveikjulás. Það er
búið að reka manninn, það var ein
falt, en það á eftir að lagfæra gallann
í um tuttugu milljón bílum.
Mary Barra, forstjóri General Mot
ors, hefur lýst því yfir að fyrirtækið
sé bótaskylt vegna dauðsfallanna.
Þó eru enn álitamál um hve margir
hafa látið lífið einmitt vegna þess að
kveikjulásinn átti það til að drepa á
bílnum á fullri ferð.
Fleiri hafa látið lífið í bílslysum í öku -
tækjum frá GM en bara þessir þrettán
sem ábyrgð er tekin á. Þetta getur
orðið grundvöllur langra mála ferla
þar sem reynir á úthald og kænsku
forstjórans. Ef til vill koma eiginleikar
Mary Barra einmitt í ljós í þessum
vandræðum. Hún er sögð vilja hafa
hlutina einfalda og ljúka hverju verki
sem hafið er. Og hún er sögð bæði
þolinmóð og ákveðin.
einfaldar lausnir
Til þess var tekið þegar Mary Barra
var starfsmannastjóri hjá GM að hún
gerði í hvelli upp vandamál sem
höfðu vafist fyrir öðrum. Sem dæmi
er nefnt að fyrirtækið hafði strangar
reglur um klæðnað starfsfólksins.
Þetta var orðið heil bók og hið
flóknasta mál að fylgja reglunum.
Barra kastaði þessu rugli og setti nýja
einfalda reglu: Klæðnaður við hæfi!
Hún treystir fólki til að finna það út
sjálft.
Mary Barra hefur verið í eldlín unni
í sumar einmitt vegan gallans á
kveikju lásnum. Nafn hennar varð þó
fyrst þekkt um allan heim í upphafi
árs. Þá varð hún fyrsta konan til að
taka við stjórn hjá einni af stóru bíla
smiðjunum í Detroit. Bílar í Ameríku
eru fyrir alvörukarlmenn – eða hvað?
Nei, ekki lengur.
Þetta varð til þess að Barra skaut
skyndilega upp í efri sætin á listum
yfir valdamestu konur heims. Forbes
setti hana þegar í þrítugasta og
fimmta sætið og hún prýddi forsíðu
tímaritsins Time í apríl. Þar var fjallað
um hundrað valdamestu konur
heims. Mary Barra var orðin tákn fyrir
konur í áhrifastöðum í viðskiptalífinu.
endurskipulagningar þörf
Núna gustar vel um hana á erfiðum
tímum hjá fyrirtækinu. Sérfræðing
ar voru þó búnir að spá átökum
áður en þessi kveikjulásgalli kom
til. Mönnum hefur lengi verið ljóst
að taka þyrfti til hendinni hjá GM.
Þessi tiltekt átti þó fyrst og fremst
að snúast um hagræðingu og aukin
afköst í bílasmíðinni. Í þessum efnum
stendur GM keppinautunum að baki.
Barra var kölluð fyrir þingnefnd
vegna kveikjulássins en heima í
bílasmiðjunni bíða líka vandamál.
Talið er að GM hafi staðið sig verr
en keppinautarnir í að nýta sömu
íhlutina í margar gerðir bíla. Þýskir
bílasmiðir þykja snillingar í þessu.
Volkswagen hefur t.d. náð mikilli
hagræðingu með því að fækka fram
leiddum íhlutum. Ford hefur leikið
þetta eftir.
En þetta krefst skipulagningar og
ekki síst endurhönnunar á bílunum.
Hluthafa í GM dreymir um meiri gróða
og meiri arð og þarna er arð s von.
Hún kom
fyrst til
GM 18 ára
gömul sem
lærlingur og
hefur unnið
sig upp, þrep
af þrepi, frá
árinu 1979.
mary teresa Barra vakti heimsathygli fyrir hálfu ári þegar hún varð
fyrst kvenna til að stýra einni af stóru bílasmiðjunum í Bandaríkjun
um. hún er forstjóri General motors, fyrirtækis sem nú er umtalað
fyrir gallaða framleiðslu. en mary Barra er kunn fyrir einfaldar
lausn ir á flóknum vandamálum.
TexTi: Gísli KrisTjánsson
finnska kraftakonan
Mary Teresa Barra, forstjóri General Motors:
nærmynd