Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2014, Qupperneq 45

Frjáls verslun - 01.04.2014, Qupperneq 45
FRJÁLS VERSLUN 4. 2014 45 É g er ánægð með hvernig starf - semin hefur verið að þróast í þessu krefjandi umhverfi sem við störf um í og mjög stolt af ýmsum árangri sem við höfum náð í innra starfi félags ins,“ segir Sigrún Ragna Ólafsdóttir þegar hún er spurð hvaða árangur hún er ánægðust með hjá VÍS það sem af er árinu. „Hjá VÍS starfa mjög samheldnir og reyndir starfsmenn sem hafa unnið að ýms - um spennandi verkefnum svo sem eins og að innleiða straumlínustjórnun og hefja inn leiðingu á nýjum stöðluðum grunntrygg - ingakerfum. Þessi vinna miðar öll að því að gera okkur kleift að veita viðskiptavinum okkar betri þjónustu og auka ánægju þeirra enn frekar, en það er markmið okkar hjá VÍS.“ VÍS fékk viðurkenningu sem fyrirmyndar - fyrir tæki í góðum stjórnarháttum fyrr á árinu frá Rannsóknarmiðstöð um stjórnar - hætti við Háskóla Íslands. „VÍS var fyrst íslenskra tryggingafélaga til að hreppa nafn bótina en góðir stjórnarhættir eru hluti af samfélagsábyrgð fyrirtækisins sem við leggjum mikla áherslu á. Við feng um einnig viður kenningu Creditinfo sem framúr skar - andi fyrirtæki og þá erum við mjög stolt af viður kenningum sem féllu okkur í skaut þegar Íslensku auglýsingaverðlaunin voru afhent í febrúar.“ Sigrún Ragna segir að sér finnist atvinnu - lífið vera komið upp úr hjólförunum. „Margir mælikvarðar benda til að við séum að fara í rétta átt. Minni skuldsetning og skýrara eignarhald gefur atvinnulífinu aukinn kraft.“ Þá er hún bjartsýnni á uppgang atvinnu - lífsins en á sama tíma í fyrra. „Mér finnst t.d. mjög jákvæð þróun hafa átt sér stað varðandi þá sátt sem hefur náðst við gerð meginþorra launasamninga á milli launþegasamtaka og atvinnulífsins. Nú reynir á að ríkistjórnin standi við sinn þátt í samkomulaginu.“ Hvert er brýnasta verkefni ríkisstjórn ­ arinnar að hennar mati? „Afnám gjald eyrishafta og að tryggja pólitískan stöðugleika og gott samstarf við hags - munaaðila s.s. atvinnulífið.“ Sigrún Ragna telur að það sé tiltölulega auð velt að stofna fyrirtæki á Íslandi og komast inn á markaði. „Íslenski mark - aðurinn er hins vegar mjög lítill en með tilkomu netsins og sölu þar hafa mögu - leikar íslenskra fyrirtækja gjörbreyst og þá möguleika verðum við að nýta til fulls.“ Hver eru þrenn algengustu mistök stjórn ­ enda í starfi að hennar mati? Hún segir að í fyrsta lagi sé það skortur á langtíma - stefnu mörkun og ótti við að gera mistök, í öðru lagi þegar valddreifing sé ekki nægileg og sam starfsfólk fái ekki viðeigandi ábyrgð og í þriðja lagi þegar stjórnendur hlusti ekki nógu vel. En hvað með besta veganestið sem hún hefur fengið í stjórnun? „Að hafa trú á fólki, þar með talið samstarfsfólki, og vilji til að veita því umboð til athafna.“ sigrún ragna situr í stjórn viðskiptaráðs og er jafnframt varaformaður ráðs ins, hún situr í stjórn samtaka fjármála fyrir ­ tækja og í stjórn samtaka atvinnu lífsins. Vilborg Einarsdóttir, frkvstj. Mentors og stjórnarmaður í Samtökum iðnaðarins. 2014 áhrifamestu konurnar 100 mikilvægt að hafa trú á fólki Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri VÍS:
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140
Qupperneq 141
Qupperneq 142
Qupperneq 143
Qupperneq 144
Qupperneq 145
Qupperneq 146
Qupperneq 147
Qupperneq 148
Qupperneq 149
Qupperneq 150
Qupperneq 151
Qupperneq 152
Qupperneq 153
Qupperneq 154
Qupperneq 155
Qupperneq 156
Qupperneq 157
Qupperneq 158
Qupperneq 159
Qupperneq 160
Qupperneq 161
Qupperneq 162
Qupperneq 163
Qupperneq 164
Qupperneq 165
Qupperneq 166
Qupperneq 167
Qupperneq 168
Qupperneq 169
Qupperneq 170
Qupperneq 171
Qupperneq 172
Qupperneq 173
Qupperneq 174
Qupperneq 175
Qupperneq 176
Qupperneq 177
Qupperneq 178
Qupperneq 179
Qupperneq 180

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.