Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2014, Page 82

Frjáls verslun - 01.04.2014, Page 82
82 FRJÁLS VERSLUN 4. 2014 uð sem fólk myndi að minnsta kosti eiga erfiðara með að segja beint við þann sem um - mælin eiga við. Þá sýnist mér að samskipti í gegnum net og tölvur geti frekar valdið misskilningi en þegar fólk talar saman. Öll mannleg samskipti eru vandasöm og það er auð - velt að misskilja fólk, slíkt er enn auðveldara þegar fólk sendir skilaboð í gegnum tæki þar sem þau eru líka oftar en ekki stuttaraleg og óformleg. Varðandi fjölmiðlaumræðuna virðist sem tæknin sé að veikja góða fjölmiðla víða um heim. Hér á landi hafa helstu fjölmiðlar veikst verulega að undanförnu af ýmsum ástæðum sem kemur meðal annars fram í því að það birtast sárafáar greiningar á þjóðfélagsmálum. Þetta þýðir að ólík sjónarmið fá ekki að koma fram og umræðan verður mjög einhliða. Þetta er mikið áhyggjuefni.“ Áreitið er mikið í samfélaginu. Þú hefur rætt um mátt og aukið mikilvægi þagnarinnar við þessar aðstæður. Hvernig hugsar þú það? „Eitt af mínum rannsóknar - efn um er friðhelgi einkalífsins eða persónuvernd, meðal ann ars mikilvægi þess að við gefum hvert öðru svigrúm og förum vel með persónulegar upplýsingar. Síðan hef ég einnig verið áhugamanneskja um jóga og hugleiðslu á síðustu árum. Saman hefur þessi áhugi leitt mig að þögninni og ég hef skrifað örlítið um hana að undanförnu og haldið fyrirlestra. Ég held að þögnin sé stórlega vanmetin í nútíma sam félagi. Þögn getur auðvitað haft margs konar merkingu en ég hef einkum í huga þögn sem er eiginleg kyrrð og nærir sálina. Efnið tengist líka þeirri hugmynd að það hjálpi ætíð að ræða alla hluti og maður eigi að segja það sem kemur fyrst í hugann. Það skiptir auðvitað miklu máli að ræða málin en það má ekki verða til þess að við gleymum gildi þagnarinnar. Við getum veitt hvert öðru mikinn styrk og næringu með því að segja ekkert heldur leyfa þögninni að tala.“ „Í mínum huga á ekki að skilja sam ­ fé lagslega ábyrgð þröng um skilningi eins og Friedman boð aði, heldur verður að huga að þeirri stöðu sem fyrir tæki hefur í samfélaginu.“ heiðarleiki, kjarkur, gleði og samvinna Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, framkvæmdastjóri Pizza Hut á Íslandi og Finnlandi É g er ánægðust með einhug og samheldni starfsfólksins okkar,“ segir Þórdís Lóa Þórhallsdóttir þegar hún er spurð hvaða ár ang- ur hún er ánægðust með hjá fyrir tæk inu það sem af er árinu. „Sam vinna, metn aður, gleði og áhugi er gríðarlega mikilvægt veganesti þegar tímar eru breyti legir og áskoranir á hverju horni.“ Þórdísi Lóu finnst atvinnulífið ekki vera komið upp úr hjólförunum. „Fyrirtæki eru að berjast við of háan kostnað sem kemur niður á framþróun og nýsköpun. Einnig er mikill óróleiki á kjaramarkaði, verkföll og vinnudeilur sem hafa gíðarleg samfélagsleg áhrif.“ Þórdís Lóa segist stundum vera óþarflega bjartsýni í eðli sínu en varðandi það hvort hún sé bjartsýnni á uppgang atvinnulífsins nú en á sama tíma í fyrra segist hún eins og stendur ekki vera sérstaklega bjartsýn enda sé ekki komin nein ró eða stöðug stefna á atvinnulífið. Hvert er brýnasta verkefni ríkisstjórn ar ­ innar að mati hennar? „Það er að koma á langtímahagstjórn sem öll stjórnmálaöfl svo og hagsmunaaðilar kæmu að. Það væri stefna sem þjóðin gæti staðið á bak við og myndi ekki breytast á fjögurra ára fresti. Stöðugleiki og skýr stefna er algjör forsenda að mínu mati fyrir góðu og heilbrigðu efnahagslífi sem hefði áhrif á alla þjóðina.“ Þórdís Lóa segir að það sé auðvelt að stofna fyrirtæki á Íslandi sem og í öðrum löndum í Norður-Evrópu. „Það fer síðan eftir því í hvaða bransa maður er hvernig er að komast inn á markaði.“ Hvað með þrenn algengustu mistök stjórnenda í starfi? „Það er að missa fókus og hugsa ekki um liðsheildina og fólkið. Viðskipti snúast alltaf um fólk og ef við hugum ekki að fólkinu okkar förum við ekki langt.“ Hvað segir Þórdís Lóa um besta vega nest ­ ið sem hún hefur fengið í stjórnun? „Besta veganestið sem ég hef tileinkað mér er heiðarleiki, kjarkur, gleði og samvinna.“ Þórdís lóa er stjórnarformaður félags kvenna í atvinnulífinu, naskur ehf., finnsk­íslenska viðskiptaráðsins og naskar investments ehf. hún situr í stjórn spyr.is, aladin invest ehf., fresko ehf., askur oy og jogo oy.Þórdís Lóa er stjórnarformaður Félags kvenna í atvinnulífinu, FKA. 2014 áhrifamestu konurnar 100 Íslensku Húðdroparnir™ um allan heim Við erum stolt af árangri okkar á erlendri grundu og öll helstu tískutímarit og dagblöð heims mæla með vörunum okkar. „Skin saviour” – Vogue, Ástralía „Eine Wunderwaffe” – Elle, Þýskaland „Véritable ‘bijou’ de cosmétique” – Marie Claire, Frakkland „One pot wonder” – Daily Mail „Go get it” – Sunday Times
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.