Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2014, Page 90

Frjáls verslun - 01.04.2014, Page 90
90 FRJÁLS VERSLUN 4. 2014 íslenskt samfélag. Þetta eru fyrir tæki allt frá því að vera með hjólagafladempara úr koltrefjum til að létta keppnis - hjól í tæki til svefn rann sókna eða tæki til að greina alzheimer. Þetta eru oft ungir frumkvöðlar og heimurinn er bara pínulítill í þeirra augum. Viðhorfið til verkefnisins er eitthvað á þessa leið: „Við ætlum að fara út í þennan stóra heim og við ætlum að kynna okkur vegna þess að við erum með æðislega vöru. Við ætlum bara að fá fjármagn og við ætlum að „meika“ það. Við verðum næsta Plain Vanilla.“ Þetta er viðhorfið. Svo mun fólk auðvitað gera mistök en þá er bara að læra af þeim og reyna aftur. Nákvæmlega eins og upphafsmenn Plain Vanilla gerðu sjálfir á sínum tíma.“ Ragnheiður Elín segir það til marks um áhugann í þessu efni að á einni viku nýlega hafi hún ávarpað þrjá Start-up -viðburði; Startup Energy Reykjavík, Start-up Iceland og ársfund Nýsköpunarsjóðs. Hún segist sjálf hafa tekið þá ákvörðun þegar hún kom í ráðuneytið fyrir um ári að fara og heimsækja sem flest þessara fyrirtækja og hefur henni þótt það afar gagnlegt. „Ég tók nokkra heimsóknarrúnta þar sem ég spurði alltaf sömu spurninganna: Segðu mér sögu þína, hvar ertu staddur, hvað hefur hjálpað þér og hvað ekki, hvað á að laga og hverju eigum við að hætta. Það var rauður þráður í svörum allra og sömu skilaboðin: Við erum útsjónarsöm, skapandi og frjó og ótrúlega góð að byggja upp fyrirtækin á ákveðinn stað. Svo vantar okkur í fram - haldinu fjármagn til að taka næstu skref en þá eigum við á hættu, sérstaklega núna á meðan við búum við höft, að missa fyrirtækin úr landi og náum þá jafnvel ekki að sjá afraksturinn af uppeldinu og fjár festingunni. Þetta þurf um við að laga. Það eru sérstak - lega tvö tæki sem menn hæla í þessu sambandi; annars vegar Tækniþróunarsjóður, ekki síst vegna þess að sjálft um sóknarferlið hjálpar fyrir - tækjunum í þróuninni. Þar eru gerðar kröfur um að þau þurfi að skila ákveðinni framvindu og gera áætlanir þannig að fyrir - tækin vaxa með umsókninni og bæta sig. Hins vegar er það endurgreiðslan á sköttum vegna rannsókna og þróunar. Þetta er það tvennt sem nánast allir nefna að hjálpi til og gagnist vel.“ Hún segist einnig finna fyrir miklum áhuga stórra og smárra erlendra fjárfesta á verkefnum hér á landi. „Oft tengist það orkunni og hagstæðu raforku - verði sem við höfum haft í gegnum tíðina og við höfum notið mjög góðs af sem sam - félag. Raforkukerfi okkar hef - ur byggst upp vegna þessara stóru samninga. Þarna þarf þó vissulega að leita ákveðins jafnvægis. Landsvirkjun og orkufyrirtækin hafa mótað sér sína stefnu í því efni. Ég vil hins vegar hnykkja á því sjónarmiði mínu að mér finnst að við eigum að nýta orkuna með sjálf bærum hætti til heilla fyrir alla þjóðina og ekki einblína á einhvern einn iðnað. En við sjáum núna fjölgun gagnavera, kísilvera, lítilla tæknifyrirtækja og fiskeldisfyrirtækja sem allt tengist orkunni. Þarna eru fjölbreytt tækifæri og ríkjandi þessi hugsun sem sjá má víða – t.d. í auðlindagarðshugmyndum á Reykjanesinu – að hrat úr einni verksmiðju verður hráefni annarrar, svo sem eins og hvernig Carbon Recyling nýtir gufuna úr Svartsengisvirkjun eða fiskeldisfyrirtækið Stolt Sea Farm affallið úr Reykja - nesvirkjun. Allt verður þetta til að gera okkur leiðandi í því að nýta orkuna með sem bestum hætti,“ segir Ragnheiður Elín Árnadóttir. „Við erum líka að breyta starfsumhverfi bíla leigna og taka á ólöglegu gistingunni, ekki síst með einföld ­ un í huga.“ áhersla lögð á jafnréttismál Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR: Ó lafía B. Rafns - dóttir, formaður Verslunar manna - félags Reykja - víkur, segir að þegar hún líti til síðustu mánaða sé hún ánægð með hversu vel starfsmönnum VR hafi tekist að auka og efla samskiptin við félagsmenn og átt við þá mikilvægt sam tal, sem sé grundvöllur starf seminnar. „Hvað varðar einstök verkefni er ég ánægð með þró - unina í starfsmenntamálum innan félagsins en sá mála - flokk ur er mér sérstak lega hugleikinn. Svo vil ég nefna jafn réttismálin en á síðustu misserum höfum við lagt aukna áherslu á þau, m.a. með Jafn launavottun VR.“ Ólafía segist binda miklar vonir við að atvinnulífið sé komið upp úr hjólförunum en að hún hafi áhyggjur af þenslu. „Við erum ekki komin út úr höftum og ég hef áhyggjur af þeim fyrirtækjum sem eru að flytja frá Íslandi.“ Hún er bjartsýnni þegar kemur að uppgangi atvinnu - lífsins en á sama tíma í fyrra. „Ég tel að það séu mörg afar spennandi tækifæri í greinum eins og ferðaþjónustunni en ef hún á að vera arðbær til fram tíðar þurfa aðilar vinnu - markaðarins að taka höndum saman.“ Að mati Ólafíu er brýnasta verkefni ríkisstjórnarinnar að koma Íslendingum út úr höftunum og móta peninga - stefnu sem hægt er að byggja Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR. 2014 áhrifamestu konurnar 100
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.