Frjáls verslun - 01.04.2014, Page 134
134 FRJÁLS VERSLUN 4. 2014
KonuR Í FoRSVARi
Átaksverkefninu konur í tækni var hleypt af stokkunum síðastliðinn vetur til höfuðs
þeirri mýtu að tæknistörf séu fyrst og fremst fyrir karlmenn. Marel, ásamt fjölda annarra
fyrirtækja, tók þátt í verkefninu og í febrúar sl. var haldin viðburður í Marel þar sem
nokkrar konur innan fyrirtækisins deildu reynslu sinni af tækniheiminum.
Marel er stærsta hugbúnaðarhús á Íslandi
Texti: Hrund Hauksdóttir / Myndir: Sveinbjörn Úlfarsson
Á
þessum viðburði
kom skýrt í ljós
að konur í tækni -
geiranum telja
mikla þörf á að auka sam -
vinnu sín á milli; með það
að mark miði að styðja við
konur í tæknigeiranum, hvetja
konur til þess að leggja fyrir
sig nám í tæknigreinum og
styrkja tengslanet sitt. Þegar
tek inn er saman fjöldi þeirra
sem vinna við þróun kerfis- og
tækjabúnaðar í höfuðstöðvum
fyrirtækisins í Garðabæ er ljóst
að Marel er eitt af stærstu hug -
búnaðarhúsum á Íslandi.
tæknigeirinn er
áhugaverður fyrir
konur
„En hér viljum við gjarnan
sjá fleiri konur,“ segja þær
Guðrún Lauga Ólafsdóttir,
Gunnlaug Ottesen og Kristín
Gróa Þorv aldsdóttir, sem vinna
í upplý s ingatækni og forritun hjá
Marel. Tölvunarfræðingarnir
Guðrún Lauga og Kristín hafa
báðar unnið hjá Marel í tíu
ár en Guðrún er einnig með
meistaragráðu í verkefna stjórn -
un. Gunnlaug er stærðfræð -
ingur og sérfræðingur í upp lý s -
ingatækni og hún hefur verið hjá
Marel í tvö ár.
Hefur mikið breyst varðandi
stöðu kvenna innan tækni
geirans á síðustu tíu árum?
Guðrún Lauga: „Það er jákvætt
að undanfarin ár hefur um -
ræðan um konur í tækni grein -
um aukist og mér finnst ungar
konur vera að stíga fram og
vekja athygli á því að það er
margt áhugavert fyrir konur í
tæknigeiranum og svo miklu
meira en bara forritun.“
Kristín Gróa: „Þetta gerist þó
mjög hægt. Ég er þeirrar skoð -
unar að í öllum starfs grein um
sé fjölbreytni af hinu góða og
einmitt þess vegna þurfi fleiri
konur í tækni. Það er mikil
synd að konur séu að missa af
svona skemmtilegum og krefj -
andi störfum þegar þær geta
svo vel unnið þau til jafns við
karl menn.“
Þurfum við fleiri konur í tækni
og ef svo – af hverju?
Gunnlaug: „Já, það væri gott
að fá fleiri konur í tæknigeirann
því konur eru að hluta til með
Gunnlaug ottesen, Guðrún Lauga Ólafsdóttir og Kristín Gróa
Þorvaldsdóttir.