Frjáls verslun - 01.04.2014, Síða 147
FRJÁLS VERSLUN 4. 2014 147
H
refna Ösp Sig -
finns dóttir, fram -
kvæmdastjóri
Mark aða – Lands -
bankanum:
Hvaða atriði finnst þér helst
hafa breyst varðandi stöðu
kvenna innan atvinnulí
fsins á síðustu tíu árum?
„Mitt mat er að margt hafi
breyst, en samt of lítið. Töl -
fræð in lýgur ekki; enn eru fáar
konur forstjórar og fáar konur
í stjórn um stærri fyrirtækja.
Þessu þarf nauðsynlega að
breyta og það er hægt; vilji er
allt sem þarf eins og stundum er
sagt. Ég er hins vegar nokkuð
sátt við hvernig að þessum mál -
um er staðið á mínum vinnu -
stað, þar eru fleiri konur en
karlar í framkvæmdastjórn og
hlutur kvenna í lykilstörfum fer
vaxandi.“
Hversu mikið notar Lands
bankinn samfélagsmiðla
eins og Facebook í mark aðs
setningu?
„Við leggjum töluverða
áherslu á samfélags- og vef -
miðla í okkar markaðs- og
kynn ingarstarfi. Við aug lýsum á
Face book og öðr um sam félags -
miðlum og það hefur gefið mjög
góða raun. Við höfum einnig
lagt okkur fram um að sam -
stilla vel markaðsstarf okkar
á sam félagsmiðlum við vef
Lands bankans sem við not um í
auknum mæli til að kynna vörur
og þjónustu á mynd rænan og
skýran hátt.“
finnum fyrir almennri
bjartsýni
Finnur Landsbankinn fyrir
aukinni bjartsýni og eftirspurn
viðskiptavina?
„Við finnum fyrir bjartsýni.
Vöxt inn í ferðaþjónustu
þekkja allir og margar aðrar
atvinnugreinar eru á góðu
skriði. Einstaklingar eru líka
bjartsýnni en áður, ef marka má
aukn ingu útlána til íbúðakaupa.
Markaðirnir eru að komast í
eðlilegt horf, öflug fyrirtæki
hafa verið skráð í Kauphöllina
og fleiri bíða skráningar. Við
sjáum líka á hagvaxtarspá hag -
fræðideildar Landsbankans að
búist er við mun meiri hag vexti
á þessu ári og næsta en reiknað
var með. Enn skortir þó
verulega upp á fjárfestingu og
möguleikar fjárfesta eru of fáir.
Varla þarf svo að nefna fjár -
magns höftin. Vonandi sjáum
við fljótt trúverðuga áætlun um
afnám þeirra.“
Hvaða nýjungum hefur Lands
bankinn bryddað upp á síðasta
árið?
„Við erum skapandi banki og
stöðugt að innleiða nýjungar
í starfsemi okkar. Við höfum
verið að breyta útibúanetinu
okkar og erum líka að breyta
þjónustu við smá og meðalstór
fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu
með því að sameina hana
alla í Borgartúni í Reykjavík.
Síðast en ekki síst höfum
við breytt stærsta útibúinu
okkar – netbankanum – með
margvíslegum hætti síðustu árin
til að auðvelda viðskiptavinum
rafrænan aðgang að banka við -
skiptum. Á sviðinu sem ég stýri
höfum við lagt mikla áherslu á
lífeyrismál og mikilvægi þess að
byggja upp langtímasparnað.“
„Við sjáum líka á hag
vaxtarspá hagfræðid
eildar Landsbankans
að búist er við mun
meiri hagvexti á þessu
ári og næsta en reiknað
var með í lok síðasta
árs.“
Texti: Hrund Hauksdóttir / Mynd: Geir Ólafsson
Skapandi banki
Nafn: Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir.
Starf: Framkvæmdastjóri Markaða
– Landsbankanum.
Fæðingarstaður: Reykjavík.
Maki: Böðvar Þórisson.
Börn: Sigfinnur Böðvarsson, 16
ára, Kristín Böðvarsdóttir, 14 ára,
Ingunn Böðvarsdóttir, átta ára.
Tómstundir: Hjólreiðar og skíði.
Sumarfríið 2014: Ísland er best
á sumrin, nota fríið í ferðalög
innanlands.
Hrefna ösp Sigfinnsdóttir, framkvæmdastjóri Markaða – Landsbankanum.
Landsbankinn er skapandi banki og stöðugt að innleiða nýjungar í starfsemi sinni.
KonuR Í FoRSVARi