Frjáls verslun - 01.04.2014, Síða 150
150 FRJÁLS VERSLUN 4. 2014
Anna Björk, forstjóra-, framkvæmdastjóra- og stjórnendaráðningar; Hildur Erla framkvæmdastjóri; Sigur-
jón, stjórnendur og sérfræðingar í upplýsingatækni; Sigríður skrifstofustjóri; Jón Eggert, stjórnarmenn og
starfsmenn á fjármálamarkaði; Kristinn t. Gunnarsson stjórnarformaður.
Þegar Hildur Erla Björg -vinsdóttir, fram kvæmda -stjóri Ráðum, er innt
eftir því hvað henni finnst helst
hafa breyst varð andi stöðu
kvenna innan atvinnu lífs ins
á síðustu tíu árum svarar hún
eftir farandi:
„Í dag eru fleiri konur með
framhaldsmenntun og mikla
stjórnunarreynslu. Það leiðir
sjálfkrafa af sér að við höfum
úr mun hæfari og fjölbreyttari
hópi að velja þegar kemur að
ráðningum yfirstjórnenda og
stjórnarmanna. Mín reynsla er
sú að forsvarsmenn fyrirtækja
eru meðvitaðir um þessa stöðu
og vinna margir markvisst í
að efla hlut kvenna í sínum
fyrirtækjum. Vonandi heldur
þessi þróun áfram; mun eflaust
gera það ef konur halda áfram
að sækja fram í stjórn unar-
stöður.“
Þróttmikið og virkt
tengslanet
Notar fyrirtæki þitt miðla
eins og Facebook í markaðs
setningu?
„Vinna okkar felst mikið í
að leita að góðu fólki og þar
koma samfélagsmiðlarnir að
góðum notum, sérstaklega
LinkedIn og Facebook. Einnig
notum við Facebook til að láta
vita af lausum störfum sem við
auglýsum.“
Er fyrirtæki þitt og stjórnendur
þess með öflugt tengslanet?
„Já, það er einn af okkar
styrkleikum. Hjá okkur starfar
fólk með langa stjórn unar -
reynslu og öflug og traust tengsl
víða um atvinnulífið.“
mannauðsráðgjöf til
fyrirtækja
Hvaða þjónustu hefur fyrir
tækið auglýst undanfarið ár?
„Við höfum auglýst nýja nálgun
á ráðningar. Fyrir meðal stór og
lítil fyrirtæki bjóð um við vandað
og skilvirkt ráðn ingarferli sem
hefst með starfs greiningu. Við
komum til móts við þarfir stærri
fyrir tækja með því að sjá um
hluta ráðningarferilsins, með
t.d. bakgrunnskönnunum og
hæfnismati. Einnig höfum við
í auknum mæli verið að vekja
athygli á mannauðsráðgjöf til
fyrir tækja.“
„Í dag eru fleiri konur
með framhaldsmennt
un og mikla stjórnun
arreynslu. Það leiðir
sjálfkrafa af sér að við
höfum úr mun hæfari
og fjölbreyttari hópi
að velja þegar kemur
að ráðningum yfir
stjórn enda og stjórnar
manna.“
Texti: Hrund Hauksdóttir / Mynd: Geir Ólafsson
ráðum hefur auglýst nýja nálgun á ráðningar. Fyrir meðalstór og lítil fyrirtæki er boðið
upp á vandað og skilvirkt ráðningarferli sem hefst með starfsgreiningu.
Ný nálgun á ráðningar
KonuR Í FoRSVARi
Nafn: Hildur Erla Björgvinsdóttir.
Starf: Framkvæmdastjóri.
Fæðingarstaður: Reykjavík.
Maki: Snorri Gunnar Steinsson, viðskiptastjóri hjá Arctica Finance.
Börn: Theódór Enok, eins árs, Helen Silfá, 6 ára, Soffía Marja, 11 ára
og Tinna Rún, 19 ára.
Tómstundir: Útivera og bókalestur.
Sumarfríið 2014: Tvær vikur með fjölskyldunni í Súðavík og fimm daga
gönguferð með tvíburasystur minni um Austurdal í Skagafirði.
STEFNAN
Markmið fyrirtækisins:
Ráðum atvinnustofa er dótturfélag Expectus og miðar að einu marki; að
skapa virði með viðskiptavinum og aðstoða þá við að ná samkeppnisforskoti
með því að finna, velja og ráða rétt fólk á skilvirkan hátt. Leitumst við að
koma á langtímasamstarfi við viðskiptavini og vinna með þeim að ráðningum,
hvort sem er allt ferlið eða hluta þess.
Stjórn fyrirtækisins: Kristinn Tryggvi Gunnarsson (stjórnarformaður),
Ragnar Guðgeirsson og Hildur Erla Björgvinsdóttir (meðstjórnendur).