Frjáls verslun - 01.04.2014, Page 151
FRJÁLS VERSLUN 4. 2014 151
Ásdís Ósk Valsdóttir er framkvæmdastjóri Húsaskjóls. Hún segir
fyrirtækið nota vefmiðla mjög
mikið:
„Við erum á Facebook og
setjum mjög reglulega inn efni
þar. Við erum einnig með virka
heimasíðu með fræðsluefni sem
tengist fasteignamarkaði og
bloggum einnig um markaðinn.
Hluti stórrar
alþjóðlegrar keðju
Við ætlum okkur fljótlega yfir
á Twitter og Pinterest. Við
för um mjög reglulega á ráð -
stefnur erlendis og teljum afar
mikilvægt að sækja endur -
menntun.
Húsaskjól fasteignasala fékk
nýlega inngöngu í stærstu
alþjóðlegu keðjuna fyrir sjálf -
stætt starfandi fasteigna sölur.
Í henni starfa yfir 100.000
sölufulltrúar í tæplega 50 lönd -
um. Það er mikill heiður að fá
inngöngu í þessa keðju þar sem
hún velur bara eina stofu frá
litlum markaðssvæðum eins og
Íslandi. Þetta gerir okkur kleift
að hjálpa þeim sem fjárfesta
erlendis.“
stefnir í tvöföldun
kaupsamninga
Finnur fyrirtæki þitt fyrir auk
inni bjartsýni og eftirspurn
viðskiptavina?
„Á undanförnm sex mán -
uðum hafa orðið mikil um -
skipti, markaðurinn að taka
við sér og maí 2014 var stærsti
mán uðurinn á mínum ellefu ára
ferli í fasteignasölu.Við erum
t.d. komnar með jafnmarga
kaupsamninga núna í júní 2014
og allt árið 2013, svo það stefnir
í tvöföldun hjá okkur.“
Öflugt tengslanet
Eru fyrirtækið og stjórnendur
þess með öflugt tengslanet?
„Þar sem Húsaskjól er eina
kvenfasteignasalan á land -
inu gefur það augaleið að við
höfum gífurlega öflugt tengsl -
a net, vina- og viðskipta tengsl.
Viðskiptatengsl okkar tengjast
mjög mikið fyrrverandi við -
skipta vinum; þeir vísa nýjum
við skiptavinum til Húsaskjóls.
Rúmlega 80% af okkar
viðskiptavinum eru tilvísanir og
okkur þykir gífurlega vænt um
það, það sýnir að viðskiptavinir
okkar treysta okkur fyrir sínum
vinum og vandamönnum.“
langstærsti kaupenda
grunnurinn
Að hvaða leyti er Húsaskjól
ólíkt flestum fasteignasölum?
„Við erum eina kvenfast -
eigna salan á landinu þar sem
vinna fleiri en tveir eða þrír.
Húsaskjól býður eingöngu upp
á fulla þjónustu. Við leggjum
mikið upp því að mynda gott
og persónulegt samband við
mögulega kaupendur; eyð um
töluverðum tíma í að þarfa -
greina þá og aðstoða. Það hef ur
gert að verkum að í dag erum
við með langstærsta kaup -
enda grunninn – með tæplega
þúsund kaupendur á skrá sem
eru í virkri leit að fasteignum.“
„Húsaskjól fasteigna
sala fékk nýlega
inngöngu í stærstu
alþjóðlegu keðju sjálf
stætt starfandi fast
eignasala.“
Texti: Hrund Hauksdóttir / Mynd: Geir Ólafsson
Húsaskjól býður eingöngu upp á fulla þjónustu fyrir sína viðskiptavini og hentar því vel viðskipta
vinum sem gera kröfur og vilja fá hámarksþjónustu og láta fagmann sjá um málið.
Nafn: Ásdís Ósk Valsdóttir.
Starf: Löggiltur fasteignasali.
Fæðingarstaður: Dalvík.
Maki: Þórir Sigurgeirsson.
Börn: Axel Valur, 18 ára, Viktor
Logi, 12 ára, og Sigrún Tinna, 5 ára.
Tómstundir: Ferðalög, gönguferðir,
hannyrðir og allt sem snýr að
suðrænum slóðum, s.s. salsadans.
Sumarfríið 2014: Fjölskyldufrí í
Tyrklandi.
ásdís Ósk Valsdóttir
er framkvæmdastjóri
Húsaskjóls.
Eina kvenfasteignasalan á landinu
KonuR Í FoRSVARi