Tímarit Máls og menningar - 01.12.1968, Page 4
Tímarit Máls og menningar
lægsta gjaldið (Tímaritið og tvær bækur) verður kr. 800,00, miðgjaldið (Tímaritið og
fjórar bækur) kr. 1200,00 og hæsta gjaldið (fjórar bækur ásamt Tímariti) kr. 1500,00.
Við vonum að félagsmenn sjái að þessi hækkun er óhjákvæmileg og biðjum þá aðeins
að bera saman það verð sem þeir greiða fyrir bækur Máls og menningar og almennt
bókaverð eins og það verður á árinu 1969.
Nýtt myndlistarhefti, sem telst til síðasta árs, er væntanlegt í marz.
Nokkrar Heimskringlubækur eru nú í gerð, þar af tvær sem dagaði uppi á síðasta ári:
Leikrit Shakespeares, fjórða bindi, og ritgerðaúrval Skúla Guðjónssonar. Auk þess
Mannsœvi eftir Pástovskí, annað bindi. Þá kemur út í vor bókin Reykfavík, með ljós-
myndum eftir Leif Þorsteinsson, formála eftir Björn Th. Björnsson, en Gísli Björnsson
hefur haft umsjón með útliti bókarinnar. Þessi bók hefur verið í undirbúningi í nokkur
ár, og verður vandað til hennar í hvívetna. Hún verður gefin út á fjórum tungumálum:
íslenzku, dönsku, þýzku og ensku.
210