Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1977, Page 44

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1977, Page 44
Tímarit Máls og menningar Stalíns“ veitti rússum nákvæmlega sömu tilfinningu öruggs getnaðar og pólitískur leiðtogi og frjósemistákn veitti ættflokki sínum í fyrnsku. Lifandi dæmi um þessa grundvallarþörf mannsins birtist í þeim sið þegar litlar stúlkur (og drengir, en einkum stúlkur) færa Maó, Brésnéf eða Tító blóm- vendi á þjóðhátíðardögum og öðrum tyllidögum þjóðanna. Hér er um ná- kvæmlega sömu athöfn að ræða og við völsadýrkun í fornum samfélögum eða þegar maístöngin (upphafinn völsi) var skreytt blómum við hátíðlega athöfn í bændasamfélögum miðalda. Stúlkubörnin kínversku, rússnesku og júgóslavnesku eru þannig í raun að hylla pólitísk frjósemistákn þjóða sinna í mynd föður og eiginmanns; með því að skreyta þá með blómum1 öðlast þær sjálfar blessun frjóseminnar og tryggja áframhaldandi líf þjóðarinnar með heilbrigðum getnaði. I Aþenu hinni fqrnu tíðkaðist árleg helgiathöfn þar sem drottningin sem ímynd hinnar miklu móður (eða einungis eiginkona höfðingjans) var „gift“ tréstyttu af Díonysíusi (með miklum, reistum getnaðarlim) til að stuðla að og tryggja árstíðabundna frjósemi manna, búfjár og náttúru. Þetta var hið „helgasta brúðkaup“. Þrátt fyrir óteljandi biblíuvísanir í leikritinu2 ber fræðimönnum saman um að Shakespeare hafi hugsað sér Lé sem ævafornan konung og notað til þess einnig heiðnar skírskotanir.3 A hinn bóginn hefur enginn fræði- maður kannað til fulls hvernig hugsunarháttur, sem rekja má til frumstæðs ættflokkasamfélags, birtist í hinu fræga upphafsatriði leikritsins, en á því atriði hvílir öll bygging þess.4 og heitum því að létta starfsins önn af vorri elli á yngri bök, og skríða lokaspölinn án þungrar byrði. (I. 1, 37—40).5 Lér er konungur í fornum sið og völsatákn (frjósemistákn), á honum veltur það hvort ríki hans nýtur blessunar frjóseminnar.6 Þegar honum verður Ijóst að geta hans til að gegna hlutverki sínu er þorrin, hefur hann áhyggj- ur af velferð, æxlun og frjósemi þjóðar sinnar og vill því fá til unga karl- mannskrafta („younger strengths“) að stjórna henni.7 Helgiathöfnin er „heilagt brúðkaup“. Drottnar Frakkarikis og Borgundar, þeir miklu keppinautar um ástir vorrar yngstu, kæru dótmr, dvelja sem biðlar hér í vorri hirð og bíða svars. (I. 1, 44—47).8 34
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.