Tímarit Máls og menningar - 01.03.1977, Blaðsíða 73
Myndlistarþankar
um, og sakar ekki að láta þess getið að kominn var tími til að skriffinnar
Morgunblaðsins fengju eitthvert mótvægi. Sakna ég þó oft tæpitungulausra
skrifa Elísabetar Gunnarsdóttur og Níelsar Hafsteins. Og til þess að fólk
falli ekki í þá gryfju að álíta mig illgjarna manneskju, þá er ég ekki ver
innrættur en það, að ég get vel unnt Morgunblaðinu þess að hafa á sínum
snærum menntaðri, víðsýnni og vandaðri gagnrýnendur en þá Valtý Péturs-
son og Braga Asgeirsson. Þrátt fyrir að Morgunblaðið sé nú ekki mín uppá-
haldslesning.
Upp á síðkastið hafa umhverfismál verið ofarlega á baugi manna á
meðal. Ekki veit ég hvað er mikilvægara en mannlegt umhverfi þar sem
fólk lifir og hrærist, og í því sambandi verður mörg myndin hangandi á
vegg harla lítilvæg.
Mér finnst dálítið langt frá að húsateiknurum hafi tekist að skapa mann-
vænlegt umhverfi úr steinsteypunni sinni, og tímans tönn er miskunnar-
lausari við þau mannanna verk en gömlu timburhúsin sem eldast með virðu-
leik og eru þakklát sé þeim sómi sýndur. Er það annars ekki undarlegt
að fólki með óbrjálaða skynsemi og smekk skuli geðjast bemr að snikkara-
gleði aldamótamannsins en Hollywooddraumum kontóristans, útfærðum af
löggiltum húsagerðarmönnum?
Undanfarin 8 ár hefur starfað hér í Reykjavík eitt gallerí, Gallerí SUM,
og oft við heldur þröngan kost. Nú hefur fjölgað um eitt og það þriðja er
í burðarliðnum. Þetta er mjög ánægjulegt þeim sem myndlist unna. Gallerí
Sólon Islandus fer að vísu troðnar slóðir og virðist ekki ætla að taka stóra
áhættu frá listrænu sjónarmiði, en fjárhagslega ef til vill eins og oft vill
verða með fyrirtæki af þessu tagi. Hitt galleríið mun verða til húsa á horni
Suðurgöm og Vonarstrætis og er í burðarliðnum eins og áður segir. Það
mun ætla að kynna nýja og nýlega strauma í myndlist, concepmal-myndir,
bækur og objekt, svo og kvikmyndir. Mun galleríið rækta menningartengsl
við Holland, en hugur margra myndlistarmanna hefur staðið mjög til Hol-
lands hin síðari ár og ber þar margt til. I Amsterdam hafa búið og starfað
þrír íslenskir myndlistarmenn um nokkurra ára bil. Þeir sýna nú ásamt
þeim fjórða frá Dússeldorf í hinu nýja nútímasafni í París, menningarmið-
stöðinni sem kennd er við Georges Pompidou, og var húsið vígt með sýn-
ingum af ýmsu tagi, þar á meðal yfirlitssýningu á verkum Marcels Du-
champ og sýningu þeirra fjórmenninganna Hreins Friðfinnssonar, Krist-
jáns Guðmundssonar, Sigurðar Guðmundssonar og Þórðar Ben Sveinssonar.
Þar eð ég hitti Valtý Pémrsson á dögunum og hann taldi öll tormerki á
59