Tímarit Máls og menningar - 01.03.1977, Blaðsíða 43
Hovbanness 1. Pilikian
Lér konungur - Fornar rætur
Á ævafornum tíma höfðu konungar það hlutverk eitt að tryggja þjóð sinni
og náttúrunni, því landi sem lífsafkoma þjóðarinnar var undir komin,
blessun frjóseminnar. Konungurinn var að fornu völsatákn, upphafsmaður
síns kyns, hinn mikli frjógjafi, „faðir“ og „eiginmaður" kvennanna (jafnt
ungra sem aldinna) meðal þjóðarinnar, og þá einnig sinnar eigin konu og
dætra. Þetta þjóðfélags- og kynferðishlutverk konungsins er viðfangsefnið
í upphafsatriði leikritsins Oidípus konungur eftir Sófókles. Æðsti prestur-
inn (prestur Seifs, hins æðsta meðal guða) ásakar Oidípus fyrir að hafa
brugðist hlutverki sínu sem höfðingi þjóðarinnar. Þessi andlegi leiðtogi
ríkisins lýsir með myndum og líkingum ákafs líkamlegs sársauka þeirri
sótt, dauða og ófrjósemi sem ógnar sjálfum lífsgrundvelli þjóðflokksins,
hjörðum hans og náttúrunni, því landi sem fólkið þiggur af lífsviðurværi
sitt. Konur, nautgripir, allt er slegið ófrjósemi, mesta böli sem yfir frum-
stætt þjóðfélag gemr dunið. Oidípus er að verða gamall og ónýtur, annar
konungur verður að koma í hans stað.
Sá siður tíðkaðist í Grikklandi hinu forna þegar frjósemi þjóðflokksins
og náttúrunnar þótti fara þverrandi að reðurmikil stytta af Pan (minni hátt-
ar náttúruvætti) var flutt á markaðstorgið við hátíðlega athöfn og hýdd
með jurtastönglum til þess að limur guðsins tæki við sér, vaknaði af van-
megna svefni og stemmdi þannig stigu við minnkandi frjósemi manns og
náttúru.
I Evrópu miðalda voru ósnortnar bændabrúðir boðnar lénsherranum
fyrst og síðan brúðgumanum í þeirri trú að þannig mætti öðlast blessun
frjóseminnar. Mikilvægasta hlutverk hinna voldugu lénsherra miðalda var
að helga og tryggja frjósemi lénsmanna sinna og bænda sem bjuggu innan
landamerkja þeirra. Svo langlífir urðu þessir siðir að merki þeirra má greina
fram á 18. öld, t. d. í óperunni Brúðkaup Fígarós eftir Mozart.
Mjög nýlegt dæmi þessa hugmyndamynsturs var það fyrirbrigði þegar
Stalín var kallaður „faðir“ um gervöll Sovétríkin. Imynd hins mikla „föður
3 TMM
33