Tímarit Máls og menningar - 01.03.1977, Blaðsíða 72
Tímarit Máls og menningar
muna heima hjá sér, og ríkið fær sinn söluskatt þegar myndirnar fara á
braskuppboðin, kannski afmr og aftur, en það sem er ef til vill alvarlegra
er að þarna lokast inni myndverk hjá tiltölulega þröngum hópi manna,
myndverk sem fjöldinn fær aidrei tækifæri til að sjá. Til hvers eru þá
söfnin? Og hvað gera þau?
Listasafn alþýðu hefur undanfarin ár haldið uppi allmikilli starfsemi og
lofsverðri miðað við fjárhag, sent sýningar út á land, sett upp temasýningar
og kynnt erlenda list, en kaup safnsins og nýsöfnun mun ansi lítil að vöxt-
um. Eg veit ekki til að í safninu finnist verk yngri myndlistarmanna að
neinu marki, þannig að safnið smðlar ekki að gróandanum í listinni.
Ekki verður heldur sagt með neinni sanngirni að Listasafn Islands hlúi
að nýgræðingnum eða sé lyftistöng ungum kröfmm. A síðastliðnu ári hélt
safnið, sem er eign ríkisins, eða þjóðarinnar, hvernig sem á það er litið,
poppsýningu. Ut af fyrir sig var það ágætishugmynd þó hún væri nokkuð
síðbúin. Safnið þurfti að fá lánuð svo til öll verkin; tíu ára tímabil eða svo
í íslenskri myndlistarsögu hafði farið að mesm framhjá aðstandendum þess.
Sýningin var síðan sett upp frammi í anddyri safnsins og hvorki var eytt
í plakat eða sýningarskrá enda aurar safnsins engir að sögn. Það er undar-
legur óskapnaður það opinbera, og eins og kerlingin sagði er meira en lofs-
verð sparsemi að svelta sjálfan sig í hel.
Að undanförnu hefur þó verið viðleitni til fræðslu af hálfu safnsins,
hafa verið sýndar merkar kvikmyndir, og er það spor í rétta átt að halda
fyrirlestra fyrir almenning og skólafólk og ágætis krydd á hina starfsem-
ina að efna til sýninga á stórafmælum myndlistarmanna eða þegar einhver
þeirra er svo óheppinn að deyja.
Listahátíðarnefnd til mikillar ánægju fékk Listasafnið hingað sýningu á
málaranum Hundertwasser ókeypis og var það ásamt stórskemmtilegri sýn-
ingu á dánargjöf Dunganons greifa sýnt undir merkjum Listahátíðar 76.
Hundertwasser þessi fræddi íslendinga í leiðinni um fegurð og notagildi
þess að hafa gras á þökum og þótti frumlega athugað. Þessar tvær sýningar
ásamt grafíksýningu að Kjarvalsstöðum var framlag Listahátíðar til mynd-
listar. Listahátíðarnefnd skilaði nú nýverið hagnaði af hátíðinni, rúmum 6
milljónum króna ef ég man rétt, svo geta menn sagt að það borgi sig ekki
að gera út á kúnst á Islandi.
Ein er sú stétt tengd myndlistinni sem virðist tímgast með ágætum um
þessar mundir, en það eru myndlistargagnrýnendur, og er það vel að til
þess hafi valist fólk sem ekki hefur eiginhagsmuna að gæta í skrifum sín-
58