Tímarit Máls og menningar - 01.03.1977, Blaðsíða 122
Til félagsmanna
Okkur þykir hæfa að gera nokkra grein fyrir afkomu Máls og menningar fyrir
árið 1975, þar sem reikningar síðastliðins árs liggja enn ekki fyrir.
Nokkur bati var í afkomu útgáfunnar það ár. Reikningar sýndu hagnað sem nam
133 þúsundum króna. Veltan óx um 88% og komst í 34 m. kr. Tekjurnar jukust
um 87%. Birgðir eigin bóka lækkuðu úr rúmlega 8 m. kr. í 6,5 m. kr. Birgða-
talning hafði til þess tíma ekki farið fram og raunverulegt verðmæti birgða því
óvíst. Enginn efi er á að birgðir eru vanmetnar. Skuldir námu um 26 m. kr., þar
af löng lán tæpum 19 milljónum. I ársbyrjun 1975 var tekin sú stefna að auka
veltuna sem mest svo að svigrúm myndaðist til að geta greitt afborganir af lánum
sem tekin höfðu verið að undanförnu.
Bókabúðin skilaði 654 þús. kr. hagnaði. Söluaukning var 50%, en rekstrar-
kostnaður jókst um 54%, þannig að afkoman var hlutfallslega heldur verri en árið
1974.
Þegar reikningar ársins 1976 liggja fyrir eftir aðalfund munum við greina frá
niðurstöðum þeirra í aðalatriðum, þannig að félagsmenn geti fylgst með afkomunni.
Við viljum við þetta tækifæri skora á félagsmenn að greiða árgjöld fyrri ára sem
allra fyrst eða tilkynna afgreiðslunni úrsögn sína. Enn er álitlegur hópur félags-
manna sem hefur ekki greitt félagsgjöld síðastliðins árs. Eftir útkomu þessa heftis
verða allir þeir sem skulda tvö ár eða fleiri strikaðir út af félagsmannaskrá.
Gíróseðlar hafa verið sendir öllum félagsmönnum og ætti því að vera handhægt
um greiðslu.
Argjaldið fyrir yfirstandandi ár er kr. 2500 og verða gíróseðlar sendir út fljótlega
eftir útkomu tímaritsins.
Á næsm mánuðum verður gerð herferð til að fjölga félagsmönnum. Takmarkið
em þúsund nýir félagsmenn á árinu. Mun sú útbreiðslutilraun verða kynnt hér í
næsta tímariti sem væntanlega kemur út í júní/júlí.
Á næsmnni koma út þessar bækur: Ný ljóðabók eftir Nínu Björk Árnadótmr
- Mín vegna og þín. Síðan kemur endurútgáfa af Vopnin kvödd í þýðingu Hall-
dórs Laxness. Þetta fágæta snilldarverk hefur verið algjörlega ófáanlegt um ára-
tuga skeið. Er ekki að efa að félagsmenn taki þessari bók með fögnuði. í vor kemur
einnig út það sem enn er óútkomið af verkum Þórbergs Þórðarsonar. Er þar um
að ræða átta bækur. Er þetta tvímælalaust mesta stórvirki sem Mál og menning
hefur ráðist í um árabil. Verkin sem nú koma eru: Rauða hcettan, Ritgerðir í tveim
bindum og endurprentanir á Frásögnum og Ævisögu Arna prófasts í þremur bind-
um en áður var íslenskur aÖall kominn út. Þar með er lokið heildarútgáfu af verk-
um meistara Þórbergs. Saga Einars ríka mun bíða enn um sinn, svo og ýmis æsku-
verk meistarans sem komið hafa út að undanförnu. I fyllingu tímans munu þessi
verk þó koma út innan þessarar heildarútgáfu.
Að lokum minnum við félagsmenn á að gera skil á árgjöldum sem fyrst. I góð-
um félagsskap er skilvísi ágætur eiginleiki.
Þ. Ó.
108