Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1977, Side 79

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1977, Side 79
Það kvað vera fallegt í Kína hvort kínverska byltingin og það samfélag, sem af henni vex, sé glæst fyrirmynd öðrum, eða þá hvort reynsla hennar hafi fyrst og fremst stað- bundið gildi. Enn má að því spyrja hvort þessi bylting sýni í nokkrum greinum víti til varnaðar. Þegar á heildina er litið nýtur kínverska byltingin góðs orðstírs. Lang- samlega flestir sameinast um að lofa kínverska kommúnista fyrir eftirtalin afrek: Hungurvofan var á brott rektn. Um 1960 bárust fregnir af matvæla- skorti í kjölfar ringulreiðar sem tilraunastarf „stóra stökksins“ var sögð hafa valdið. En síðan hefur ástandið batnað, framboð á matvælum er sagt gott, kínverjar hafa ekki þurft að ganga með betlistaf fyrir dyr ríkari þjóða. Þar með hefur kínversk bylting sýnt yfirburði yfir t. d. fálmkennda við- leitni indverja. Því er einnig fram haldið að kínverskur kommúnubúskapur hafi leyst stærri vanda en sovéskur samyrkjubúskapur og á skemmri tíma. HraÖar efnahagslegar framfarir sem koma fram í skjótri iðnvæðingu, jarðabótum, áveituframkvæmdum o. fl. Þetta hefur verið gert með því að útrýma því meira eða minna dulbúna atvinnuleysi í sveitum sem hefur staðið mörgum löndum þriðja heims fyrir þrifum. Þar er mikill fjöldi manna verkefnalítill nema á uppskerutímum og mikið um flótta í eymdar- hverfi stórborganna og annars konar atvinnuleysi. Við þessum vanda fundu kínverjar svar þar sem voru kommúnur, með þeim tekst að virkja landslýð allan við þann hluta iðnaðarframleiðslu sem fluttur er til sveitanna sjálfra. Fólkið sjálft kemur í stað þeirrar erlendu fjárfestingar sem margar þró- unarþjóðir reyna að verða sér úti um — og fá einatt með mjög hæpnum kjörum. Við þennan lið má svo bæta almennri menningarbyltingu (árang- ursríkum herferðum gegn ólæsi og vondu heilsufari). Þessar framfarir tryggja ekki aðeins bætt kjör heldur og sjálfstraust og virðingu í heiminum þeim mun frekar sem kínverjar hafa að langmestu leyti byggt á eigin afli. Þeir fengu sovéska tækniaðstoð á sjötta áratugnum sem var þýðingarmikil, en þeir urðu líka fyrir miklum erfiðleikum þegar þeirri aðstoð var skyndilega hætt og sérfræðingarnir kallaðir heim. Og Bandaríkin gerðu um árabil sitt til að auka erfiðleika Alþýðulýðveldisins með því að reyna að eyðileggja möguleika þess til viðskipta. Allt þetta hefur tryggt kínversku byltingunni góðan orðstír í mörgum herbúðum — nema hvað sovésk málgögn hafa ekkert jákvætt getað séð í Kína eftir 1960. Ahrif hins kínverska fordæmis hafa að sjálfsögðu orðið mest í þriðja heiminum og styrkt þar aðdráttarafl sósíalískra lausna. 5 TMM 65
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.