Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1977, Side 85

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1977, Side 85
Það kvað vera fallegt í Kína Allir þeir gestir, sem hér er til vitnað, láta þess getið að þeir verði fyrir hollum áhrifum af áhuga, samhjálp og virku jafnrétti í kommúnum og verksmiðjum. IV Nú er rétt að skoða þær spurningar sem þessar jákvæðu lýsingar geta upp vakið. a) Hve deemigerð eru þau þorp, þœr kommúnur, sem lýst er? Við vit- um að Tætsjí, sem Göran Lejonhufvud lýsir, er fyrirmyndarþorp, stór þing eru haldin í Kína um efnið „Við skulum læra af Tætsjí“. Jan Myrdal telur að þorpið Líu Ling sé í fátækara lagi en líklega er það samt sem áður til fyrirmyndar í félagslegu tilliti. Við getum því gert ráð fyrir því að erfiðleikar og andstæður séu meiri þegar á heildina er litið en lýsingar gestanna gætu bent til. Hve mikill sá munur er veit enginn. En fyrirvarar um jákvæð dæmi og heildarmynd koma að sjálfsögðu ekki í veg fyrir þá niðurstöðu að í landinu hafi í raun réttri gerst afar merkilegir hlutir. b) Er ekki margt af því sem gerist blátt áfram í anda heilbrigðrar skyn- semi sem kommúnistar hafa engan einkarétt á? Til dæmis það að bústjórar og verkstjórar skjóti á fundum með verkafólki sínu um áburðaröflun og uppskeruvinnu. Jú, vissulega er þarna um að ræða „manneskjulegt sam- band“ sem skynugur sjálfseignarbóndi á Vesturlöndum gemr vel leyft sér að iðka. En það sem jákvæðast er við reynslu kínverja er það að með henni viðurkenna þeir að samskipti yfirmanna og undirmanna í framleiðslustarfi séu vandamál sem leysast ekki í eitt skipti fyrir öll með byltingu heldur komi þau upp með nýjum hætti og verði að hljóta alvarlega meðferð. Ekki megi vísa þeim á bug með lýðskrumstilvísun til þess að nú sé kom- inn sósíalismi í byggðir og þar með allur vandi úr sögunni. c) Hve raunverulegur er jöfnuðurinn, til dæmis í lífskjörum? Tekju- munur getur bersýnilega verið talsverður. Peter Worsley telur að í lang- flestum tilvikum sé munur hæstu og lægsm launa í borgum 1:4, en ef lærlingar eru ekki taldir með þá í hlutfallinu 1:3. Hann tekur dæmi af raftækjaverksmiðju þar sem verkamenn fá frá 42 til 123 júan á mánuði og skiptast í átta launaflokka. Lærlingar fá minna. Hann kann sjaldgæf dæmi af tekjuhlutfallinu tíu á móti einum. Eg held að þessi hlutföll öll séu næsta svipuð því sem gengur og gerist í Sovétríkjunum sem hafa þó 71
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.