Tímarit Máls og menningar - 01.03.1977, Page 91
Það kvað vera fallegt t Kína
forréttindum, jöfnuður. Margt er þó mjög óráðið. Hinir nýju foringjar eru
„flæktir í stefnu menningarbyltingarinnar“ eins og áðurnefnd Milton-hjón
segja. Það sést t. d. á því að þeir geta ekki vikið hinum róttæku frá
nema með því að bera fyrir sig róttækar kröfur. Hvað sem líður afdrifum
og ávirðingum einstakra forystumanna skilur menningarbyltingin eftir sig
í arf þátttöku fjöldans í pólitík. Með aðild sinni að henni hlutu tugir og
hundruð þúsunda ungra manna mikilsverða reynslu af stjórnmálum og
skipulagningu, reynslu sem mun koma mjög við sögu þegar gátur núver-
andi stöðu verða leystar.
*
Kínversk bylting er lærdómsrík fyrst og fremst vegna þess að hún hefur
viðurkennt af meiri hreinskilni en gert hefur verið í öðrum byltingar-
samfélögum nauðsyn þess að berjast við þverstæður sem upp koma í
hinu nýja samfélagi sjálfu. Til dæmis hefur verið tekin upp barátta gegn
því að nýtt forystulið samfélagsins safni að sér forréttindum — og er
þá ekki sá auðveldi kostur tekinn að varpa allri ábyrgð á erlenda út-
sendara eða arf fortíðarinnar. Kínverska byltingin er vissulega örvandi
áminning um það að heimurinn er að sönnu breytanlegur og fer því með
erindi sem mjög er ólíkt þeirri kenningu sem nú verður vinsælust á kapí-
talísku höfuðbóli, Bandaríkjunum; sú kenning segir að enginn fái neinu
breytt í fjandsamlegum heimi og því sé hverjum og einum best að elska
sjálfan sig sem mest hann má. Hin kínverska reynsla er um leið áminning
um að valkostir byltingasinna eru margir og ekki auðhlaupið að vinna úr
þeim það sem að gagni má koma. Sá sem hressir sig á skjótfengnu og
barnslegu trausti á sjálfsmynd fjarlægra byltinga og pólitískra hreyfinga
mun fljótlega komast að því að hann hefur notið skammgóðs vermis.
Heimildir:
Göran Lejonhufvud: Kinesisk hverdag. Gyldendal 1974.
Magnús Kjartansson: Bak við bambustjaldið. Heimskringla 1964.
Jan Myrdal: The Revolution continued. Penguin 1973.
Edgar Snow: Red China Today. Penguin 1970.
Peter Worsley: Inside China. Allen Lane 1975.
Auk þess voru skoðaðar eða hafðar í huga margs konar greinar: Reykjavíkurbréf
í Morgunblaðinu og kínabréf APN, skrif K. S. Karols í Le Nouvel Observateur og
E. Genri í Literatúrnaja gazéta, lýsingar Newsweek og Time á Kínaferðum Nixons
og Kissingers, Peking Review og Problems of Communism.
77