Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1988, Page 97

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1988, Page 97
Tv<er sögur boðið mér til brúðkaups dóttur sinnar. Bara að ég fengi einu sinni almennilega að éta. Hann reisti við þumalfingurinn: - Það verður súpa. Hnausþykk og feit kjúklingasúpa. Sú verður góð. Eg skal tæma úr heilli skál. Og honum fannst sem hann hámaði í sig gula og stökka kökubit- ana í súpunni, smjattaði á þeim og að þeir rynnu viðstöðulaust nið- ur. - Allir að vinna, heyrðist kallað. Litli-Jón bærði ekki einu sinni á sér. Hann minntist þess að hafa í barnæsku verið viðstaddur brúðkaup. Það var hjá ættingjum en samt fékk hann ekkert nema kjúklingalappir að borða. Hann barðist við reiðina sem blossaði upp í honum. Hann kreppti hnefann og fannst sem hann gæti lamið allt sem fyrir væri, að hann gæti barið svo ógurlega að hvergi stæði steinn yfir steini. En þumallinn stóð enn bíspertur og minnti hann á það sem hann hafði verið að hugsa. - Síðan kálbögglar. . . Eg gæti étið sextíu. . . allavega fimmtíu. Fimmtíu eða engan. - Komið ykkur að verki, heyrðist aftur kallað. Jón reis upp með erfiðismunum. Hann var svangur. Honum varð litið á svartan leirpottinn. Tómur. . . Hvað ætti líka að vera í honum nema eitthvert sull. Hann sparkaði í pottinn, fast og reiðilega. Við höggið brotnaði stykki úr honum og einn þráðurinn sem hafði haldið honum saman flæktist utan um skinnskóinn. - Farðu í heitasta helvíti, bölvaði Litli-Jón og sparkaði af sér haftinu. - Alla tíð verð ég að þræla hér í sveita míns andlitis. Gamli skarfurinn býður manni ekkert á morgun. Allan daginn var hann í vondu skapi. En enginn tók eftir því. Litli-Jón var þannig að enginn tók eftir honum, það sá hann ekki nokkur maður. Og þannig var hann alla tíð, nauða ómerkilegur. Hann var hvorki sterkur né sérstaklega aumur, hvorki stór né lítill, gekk hvorki beinn í baki né hokinn í herðum, - skar sig hvergi úr. Líktist bara manni; hafði tvö augu og eitt nef. Og líka yfirvaraskegg. Og datt aldrei neitt í hug. Ef dagur var að morgni reis hann úr rekkju, að kvöldi gekk hann til náða; þegar að því kom festi hann 487
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.