Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1988, Page 114

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1988, Page 114
Tímarit Mdls og menningar unnar. Vegna fátækar og basls tekur faðir hennar því fegins hendi þegar gamall félagi hans býður henni fóstur í Reykjavík. I Reykjavík byrjar að halla undan fæti fyrir stúlkunni. Hún er alin upp við strangan aga og ástleysi, ímyndunarafl hennar smám saman brotið á bak aftur og hvergi hlýju að finna nema helst hjá Dísu vinnukonu heimilisins (sem er rekin burt þegar hún fer að skipta sér af málefnum fjölskyld- unnar) og hjá Daníel (blíðuhót hans eru þó ætíð af kynferðislegum toga og vekja með henni ugg). Uppvaxtarár hennar í borginni einkennast af endurtekningu og tilbreytingarleysi „dagar og mán- uðir hver öðrum líkir“ (24), eina mark- verða breytingin verður á persónuleika stelpunnar sem smám saman harðnar. Lýst er sambandi hennar við karlmenn. Fyrstur var Herbert sem hafði bestu hendur sem hún þekkti. Síðan kom Knútur sem vakti um stund upp aftur stelpuna Ellu og kveikti með henni meiri unað en Daníel gat grunað þrátt fyrir allar sínar tilfæringar. Með honum eignast hún son sem hún síðar missti. Svo var það hermaðurinn Jan sem vildi giftast henni. Um síðir giftist hún þó Daníel þótt til hjónabands þeirra virðist stofnað af einberri örvæntingu, hjálpar- leysi og einmanakennd af hennar hálfu. Fullorðinsár hennar einkennast af hörku sem endurspeglast í sambandi hennar og Daníels, sambandi hennar og Sigurrósar og sambandi (eða öllu heldur sambandsleysi) hennar við dóttur þeirra Daníels, Lilju. Það eina sem virðist megna að vekja með henni blíðar til- finningar er minningin um soninn sem dó. Hún minnist hans með miklum sársauka, drengsins sem er kannski sá eini sem kemur henni við nú þegar hún er á förum. Minningunni um hann hef- ur hún haldið við sem „neista sem ekki mátti slokkna. Sá neisti hafði haldið í [henni] lífinu.“ (299) Dóttir hennar gat aldrei komið í stað drengsins. Hún þurfti aldrei eins á henni að halda, gat bjargað sér sjálf. Eða þeirri skýringu virðist hún hafa komið sér upp, kannski til að breiða yfir eigin vanrækslu, eða kannski þorði hún ekki að mynda aftur tilfinningatengsl við barn, eftir að hafa misst hitt. Þessi æviferill segir þó ansi lítið um innihald sögunnar. Upprifjun sögukonu spinnst ekki rökrétt í kringum þennan línulega feril, heldur vindur hún frá- sögnina áfram á tilfinningum sem minn- ingarnar vekja með henni. Hún rekur sig áfram af hörku í gegnum líf sitt, verður að muna, - setja niður fyrir sér hverja mynd, reyna að skilja; til að geta dáið. Það er heldur aldrei alveg á hreinu hvað er satt og hvað skáldskapur í upp- rifjuninni. Sögukona minnir sjálfa sig og Daníel (og lesandann) sífellt á hverf- ulleika minnisins. Hún dregur eigin upprifjun, og ekki síst minningar Daní- els, í efa, gefur í skyn að skáldað sé í eyðurnar. En hvað er satt og hvað logið skiptir kannski ekki máli í smáatriðum. Aðalatriðið er að smám saman raðast brotin upp í heilsteypta mynd, sögu- þráðurinn spinnst um heilt mannslíf, vefur úr ótal þráðum þroska- og örlaga- sögu íslenskrar konu í gegnum fimm áratugi. I stuttu máli lýsir sagan því hvernig stúlkan Ella týnist í fjandsam- legu umhverfi, og eigin hörku. A fyrstu síðu bókarinnar eru strax gefnir fyrirboðar um ógnvænlega fram- tíð stúlkunnar í kaupmannshúsinu í Reykjavík. Hún stendur fyrir utan dyr þess, í fyrsta skipti, og hurðarhúnninn minnir hana á krepptan hnefa og í 504
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.