Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1988, Page 126

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1988, Page 126
Tímarit Máls og menningar öðru fremur frá vísindum miðalda er samþætting sértækrar hugsunar og verktækni. Rætur þeirra vísinda sem hófust til vegs með Galíleó og Newton liggja því ekki aðeins í stærðfræði og náttúruspeki fyrri alda heldur líka í tækni sem hafði þróast meðal iðnaðar- og handverksmanna. Það sem Galíleó er frægastur fyrir í sögu stjörnufræðinnar er að hafa smíðað sjónauka og notað hann til þess að skoða himintunglin. Heimsmynd á hverfanda hveli gerir grein fyrir þeim hugmyndum sem hann tók í arf og gerðu honum kleift að túlka það sem hann sá. En engin grein er gerð fyrir þeirri verkmenningu sem hann sótti til er hann smíðaði sjónaukann. Þorsteinn horfir þó ekki alveg fram hjá áhrifum tækninnar á vísindin. Hann fer til dæmis nokkrum orðum um áhrif siglingatækni og bættra samgangna á stjörnufræðina (I: 222) og áhrif prent- listarinnar á þróun vísindanna (I: 217). Eg hef nú farið nokkuð mörgum orð- um um fimmta kafla ritsins, enda er hann eini kaflinn sem ég er ekki sáttur við. Hann er líka eini kaflinn sem mér finnst að ætti að vera lengri. Með sjötta kafla verða skil í frásögn- inni. Lokið er að segja frá forsögu sólmiðjukenningarinnar og tekið að segja frá þeim vísindamönnum sem báru hana fram til sigurs. Kaflar númer sex til tíu fjalla að mestu um sex menn. Þeir eru Nikulás Kópernikus (1473- 1543), Gíordanó Brúnó (1548-1600), Tycho Brahe (1546-1601), Jóhannes Kepler (1571-1630), Galíleó Galílei (1564-1642), og Isaac Newton (1642- 1727). Kaflarnir um Brúnó og Brahe eru stuttir en hver hinna fjögurra fær nokk- uð ítarlega umfjöllun þar sem sagt er jöfnum höndum frá ævi þeirra og kenn- ingum. Sagan breytist sem sagt úr því að fjalla um heilar þjóðir og tímabil í það að vera saga fáeinna einstaklinga. Þetta er að mínu viti fyllilega eðlilegt. Það er verið að segja sögu sólmiðju- kenningarinnar og fyrstu kaflarnir fara í að kynna baksvið hennar. Aðalsögu- hetjurnar eru svo kynntar þegar þeirra tími er kominn. Það er býsna umdeilt hversu mikil áhrif einstakir menn hafa haft, eða geta haft, á framvindu sögunnar. Raunar veit ég ekki hvað hefur helst áhrif á fram- vindu hennar ef ekki einstakir menn. Þeir sem vilja gera lítið úr þessum áhrif- um segja gjarna sem svo að ef Galíleó hefði ekki skoðað himintunglið í stjörnukíki þá hefði bara einhver annar gert það, kannski nokkrum árum síðar, og framvindan síðan orðið sú sama og varð. Það er víst engin leið að komast að því hvað er hæft í þessu, því það er ómögulegt að snúa sögunni til baka, klippa atriðið með Galíleó út og sjá svo hvernig fer þegar aftur er spólað fram til nútíðar. Sjálfur hneigist ég til að álíta að menn eins og Galíleó hafi haft töluverð áhrif á söguna og tel að framvinda hennar sé að því leyti eins og manntafl að sé einn maður færður til þá geti stað- an gerbreyst og allt taflið upp frá því. Hér virðist Þorsteinn á öndverðum meiði. Hann segist „yfirleitt ekki [vilja] gera mikið úr hlut einstakra manna í framvindu sögunnar“ (II: 203). En hví skyldi hann þá gefa þeim fjórmenning- um Kópernikusi, Kepler, Galíleó og Newton nær helming meginmálsins í ritinu. Hann réttlætir þetta svofelldum orðum: Mestu veldur að mér er í mun að sýna vísindin í tengslum við samfé- lagið á hverjum tíma. Þá er alltént 516
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.