Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1991, Síða 23

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1991, Síða 23
mér að sækja um stöðuna til skólastjórnarinnar. Sér væri áhugamál að fá mig í staðinn fyrir sig. Ég fengi þetta áreiðanlega, ef ég sækti. Ég lét svo að lokum tilleiðast, sendi skriflega umsókn og fékk stöðuna. Það var ekkert annað en margra ára allsleysi, sem rak mig til að stíga þetta spor. Ég kveið ákaflega fyrir kennslunni. Ég hélt ég yrði svo feiminn, þegar ég kæmi fram fyrir nemenduma, að öll íslenskuþekking mín, sem þá var töluvert mikil, dytti úr mér, ég myndi ekki neitt og stæði uppi eins og fífl í skólanum. En þetta fór öðmvísi en ég bjóst við. Ég fann ekkert til feimni og endirinn varð sá, að ég kenndi þarna í sex (?) ár. Ég kenndi æfinlega af næstum eldlegum áhuga. Mér var liðugt um mál og átti mjög hægt með að orða hvert kennsluatriði skýrt og skilmerkilega, enda kostaði ég kapps um að hamra þau þannig inn í nemenduma, að þeim yrði þau eftimrinni- leg. Ég rækti kennsluna mjög samviskusamlega, lét aldrei undir höfuð leggjast að koma í tíma nema ég væri veikur. Nemendunum féll ágætlega við mig. Þeir töldu mig ágætan kennara. Þar að auki skemmtilegan, fjömgan og upplyftandi. Það fór orð af mér sem kennara. Mér féll kennslan sjálf fmmur vel. Það vom aðeins stílaleiðréttingamar, sem voru mér sannkallað sáiaidrep. Veturinn 1921 tilféll mér önnur kennarastaða. Þá vildi það til í janúarmánuði, að kennari verslunarskólans, Jóhann L.L. Lynge, lagðist veikur, og það var útlit fyrir, að hann kæmist ekki bráðlega á fætur aftur. Þá kom einn kennari skólans með þau boð til mín frá skólastjóra, að hann bæði mig að taka að mér kennsluna. Ég hafði fengið dálitla trú á mér sem kennara og þáði boðið. Kennslan þar gekk líka ágætlega. Flestir nemend- umir létu mjög vel af mér, töldu mig jafnvel sinn besta kennara. Ég kom mér líka alltaf vel við kennarana. Ég var afskiftalaus um allt nema kennslu mína og laus við allar intrígur og undirróður, sem spillir sam- komulagi margra, sem eiga að vinna saman. Ég var oft vakinn á morgn- ana b' þess að kenna fyrir aðra kennara, sem þurftu að sofa úr sér rykið eftir nóttina. Að áliðnu sumri 1925 kom skólanefnd Iðnskólans saman til þess að ræða um kennslu og kennara næsta vetrar. Það stóð til að einn eða tveir kennarar skólans yrðu látnir fara frá honum vegna þess að nemendurnir voru óánægðir með þá. Þegar tekin hafði verið ákvörðun um brottför þeirra, segir einn skólanefndarmanna, þáverandi borgarstjóri Knud Zim- sen: „En hvernig er með Þórberg. Á hann ekki að fara?“ TMM 1991:2 21
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.