Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1991, Síða 46

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1991, Síða 46
klósettið. Ég hef alltaf radarinn í gangi þeg- ar svona hlutir eru á ferðinni. Frá þessu sjónarmiði er merkileg lýsing á húsinu gamla í Skuggaboxi. Já, ég frétti af þessu húsi í Þingholtsstræti þar sem nú er Stofnun Sigurðar Nordals. Þegar eigandinn þar féll frá stóð þar eftir nokkum veginn ósnert heimili frá því fyrir 1930. En því miður var það rifið og tætt í sundur og selt á uppboði. En starfsmenn Árbæjarsafns fengu að fara þama áður og tóku myndir. Og ég fékk þessar myndir lánaðar og tók ljósrit af þeim og notaði þær þegar ég var að gera þessa lýsingu. Það skiptir engu máli í sögunni að það var akk- úrat þetta hús; en ég notaði þetta efni, það var eins konar vinnuhagræðing. Það var auðveldara að hafa þetta svona fyrir sér. Plásturinn, Garantinn, hellingavar- inn . . . Hellingavarinn er nú bara tæki sem ég sjálfur fann upp þegar ég var ungur. Napp- plásturinn aftur á móti byggir á Tjarnar- plástrinum, en leynileg uppskrift að honum gengur milli kvenna í föðurætt minni. Nú? Já. Ég hef að vísu aldrei séð hann og það er leyndarmál hvemig hann er búinn til. Svo get ég sagt þér frá öðru dæmi sem lýsir þessum vinnubrögðum. Það er smá- saga í Ofsögum sagt um dreng sem er nem- andi í Verslunarskólanum og lendir í erfiðum málum. Það er einhvem tíma fyrir stríð sem þetta er látið gerast. Hún heitir „Lagerinn og allt“. Og þar er eitt atriði þar sem úrvalssveit í vélritun er að vélrita við forleikinn að Vilhjálmi Tell eftir Rossini. Þetta er þannig til komið að ég var að skoða gömul skólablöð úr Verslunarskólanum sem móðir mín átti. Þar rakst ég á ljósmynd þar sem er sýndur úrvalsflokkur í vélritun uppi á sviði. Og ég sé að hún er þar. Ég fer eitthvað að spyrja hana út í þetta. Hún sagði mér að eitt af því sem þessi úrvalsflokkur hefði gert hefði verið að vélrita við for- leikinn að Vilhjálmi Tell eftir Rossini. Og þá lét ég söguna bara byrja á því að dreng- urinn rýkur út af því að vélritunarkennarinn rekur hann úr þessum úrvalsflokki. Að öðru leyti kemur sagan þessu máli ekkert við. / nýlegu blaðaviðtali (Mbl. 20/4 1991) nefnirðu að oft sé verið að skamma íslenska höfunda fyrir að skrifa mikið um œsku sína. Sjálfur virðist þú fremur nota ýmist sagn- frœðilegt eða samtímalegt efni. Hefur þér aldrei dottið í hug að gera þér mat úr bernskuárunum? Jú, ég hef nú gert það. Það em t.d. sagan úr Vatnaskógi („Ur endurminningum rót- tekjumanns I. Ég var eyland“) og ein saga sem gerist í sveitinni þar sem hringur týnist. En efni úr bemsku manns getur líka birst með ýmsu móti. Skáld og mál Stundum er talið að skáld hafi sérstakt vitsmunalegt hlutverk, að vinna þeirra með tungumálið sé á einhvern hátt vitundar- víkkandi og sé rannsókn í sjálfri sér, sem bœti boðskiptakerfið. Já, ég veit ekki alveg hvort maður getur sagt að maður sé að bæta eitthvað. En það er staðreynd að miðað við mörg önnur mál, t.d. ensku, þá vantar íslenskuna hugtök yfir allan fjandann. Og það er meðvituð stefna sem hlaðið er undir og þykir lofsverð að smíða ný orð. Þetta hlýtur auðvitað að hafa áhrif á þá sem hafa beinlínis atvinnu af því að vinna með móðurmálið. Og ég er alveg viss um að skáld á Islandi gegna þýðing- 44 TMM 1991:2
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.