Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1991, Page 49

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1991, Page 49
Sigurður Ingólfsson Geðklofinn í Gothamborg Sagan um Leöurblökumanninn eöa Batman er sú teiknimyndasaga sem hefur náö einna mestri frægö á undanförnum áratugum, auk þess sem saga hans hefur birst í kvikmynd, á bókum og í sjónvarpsþáttaröð. Hér er sagt frá ferli Batmans og erkióvinar hans Spaugarans og tekin dæmi úr nýlegri bók um kappann, sem kennd er viö Arkham geöveikrahæliö. Sturlun drengs Árið 1939, birtist fyrsta sagan um Batman í maíhefti teiknisögublaðsins Detective Comics. Sagan, sem heitir „The Case of the Chemical Syndicate“,‘ er eftir Bob Kane, og segir frá milljónamæringnum Bruce Wayne og tvöföldu lífi hans. Hann er á yfirborðinu meinlaus munúðarseggur sem á allt of mikið af peningum, en á nóttunni klæðir hann sig í leðurblökubúning og herj- ar á glæpamenn. í vorhefti ársins 1940 er sögð sagan um það hvers vegna Batman tók upp þessa iðju. Á leið heim úr bíói lentu foreldrar hins unga Bruce Wayne í útistöð- um við glæpamann, sem lyktaði með því að hann drap hjónin en skildi drenginn eftir nær frávita af harmi (seinna kom fram að þau höfðu verið að sjá myndina „Merki Zorrós“). Drengurinn sór að hefna sín. Hann þjálfaði sig líkamlega og andlega þannig að hann varð afburðamaður á báð- um sviðum. Fimmtán árum eftir dauða for- eldranna situr Bruce Wayne heima í stofu og veltir því fyrir sér hvernig hann eigi að dulbúast, því hann veit að ef hann gengi inn í undirheima stórborgarinnar í búningi hins venjulega manns, þá tæki enginn mark á honum. Þá gerist undrið: Inn um stofu- gluggann flýgur leðurblaka og Bruce Wayne les dulin skilaboð úr flugi hennar, atburðurinn er honum tákn. Wayne er í sál- rænum kröggum og les í umhverfi sínu skilaboð sem segja honum að hann eigi að gerast leðurblaka. Þetta er greinilegur geð- klofi. Allar götur síðan, í 52 ár, hefur Bruce Wayne verið klofinn persónuleiki, þar sem hann er á yfirborðinu milljónamæringurinn Wayne sem berst fyrir réttlæti, en undir niðri rymur villidýrið Batman sem á sér aðeins eitt takmark, og það er hefnd. TMM 1991:2 47
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.